Þorláksskóli
Þorláksskóli
Þorláksskóli

Skólastjóri - Þorláksskóli

Þorláksskóli er nýr sérskóli fyrir einhverf börn sem tekur til starfa haustið 2026 í Garðabæ. Leitað er að metnaðarfullum og framsýnum skólastjóra til að leiða uppbyggingu og starfsemi skólans, móta faglegt skólastarf og byggja sterkt teymi. Skólinn vinnur eftir hugmyndafræði TEACCH og DIR/Floortime og byggir starf sitt á taugaþroskavænni og áfallamiðaðri nálgun þar sem öryggi, tengsl og skynúrvinnsla mynda grunn að námi og þroska. Áhersla er lögð á einstaklingsmiðað nám, fyrirsjáanlegt og stuðningsríkt umhverfi og traust tengsl sem styðja þátttöku, vellíðan og sjálfstæði nemenda. Jafnframt er lögð rík áhersla á faglegt starfsumhverfi, vandaðan aðbúnað og stuðning við starfsfólk þannig að það geti sinnt starfi sínu af öryggi, fagmennsku og vellíðan.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Fagleg og rekstrarleg stjórnun skólans
  • Leiða uppbyggingu skólans fyrir opnun og þróa verklag, ferla og gæðakerfi
  • Mótun og innleiðing hugmyndafræði skólans í daglegt starf
  • Mannauðsmál, ráðningar, teymisvinna og fagþróun starfsfólks
  • Samstarf við foreldra, sveitarfélög og þjónustukerfi
  • Ábyrgð á gæðum náms, stuðningi, námsmati og skólaumhverfi
  • Eftirfylgni með lögum, aðalnámskrá, skólareglum og innra mati
  • Kennsluskylda til að byrja með
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Kennaramenntun og leyfisbréf kennara
  • Framhaldsmenntun og/eða reynsla af stjórnun í skólastarfi
  • Reynsla af sérkennslu og/eða vinnu með einhverfum börnum
  • Skýr fagleg sýn, sterk leiðtogahæfni og góð samskiptafærni
  • Skipulagshæfni, frumkvæði og geta til að vinna í uppbyggingarstarfi
  • Áhugi og metnaður til að þróa og efla skólastarf og stuðning fyrir einhverf börn
  • Reglusemi og stundvísi
  • Góð tölvukunnátta
  • Skilyrði er að viðkomandi hafi hreint sakavottorð.
Auglýsing birt19. febrúar 2026
Umsóknarfrestur15. mars 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
Staðsetning
Garðabær
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar