
Barnaskóli Kársness
Við Skólagerði í Kópavogi er að rísa ný og nútímaleg skólabygging, þar sem áður stóð gamli Kársnesskóli. Nýr skóli mun taka þar til starfa haustið 2025 - Barnaskóli Kársness.
Skólinn mun hýsa fjögurra deilda leikskóla og yngsta stig grunnskóla ásamt frístund. Byggingin verður öll hin glæsilegasta sem skapar spennandi tækifæri í skólastarfi. Í skólanum verða 60 – 80 leikskólabörn og um 300 nemendur í 1.-4. bekk.

Umsjónarkennari óskast út skólaárið
Barnaskóli Kársness er nýr skóli sem hýsir fjögurra deilda leikskóla og yngsta stig grunnskóla ásamt frístund. Skólabyggingin er öll hin glæsilegasta sem skapar spennandi tækifæri í skólastarfi fyrir um 60-80 leikskólabörn og um 300 nemendur í 1.-4. bekk.
Vegna forfalla vantar umsjónarkennara til starfa út yfirstandandi skólaár. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Almenn kennsla og umsjón á grunnskólastigi
- Taka þátt í uppbyggingu og mótun skólastarfsins
- Stuðla að velferð nemenda í samstarfi við foreldra og fagfólk
- Vinna samkvæmt stefnu skólans
- Vinna að því að skapa góðan skólabrag
Menntunar- og hæfniskröfur
- Kennaramenntun og leyfisbréf til kennslu
- Reynsla af kennslu í grunnskóla er æskileg
- Þekking og áhugi á kennslu- og uppeldisfræði
- Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
- Einlægur áhugi á að vinna með börnum og unglingum
- Þolinmæði og hæfni í mannlegum samskiptum
- Stundvísi og áreiðanleiki er skilyrði
- Mjög góð íslenskukunnátta
Fríðindi í starfi
Starfsfólk Kópavogsbæjar fær frían aðgang að sundlaugum bæjarins.
Auglýsing birt18. febrúar 2026
Umsóknarfrestur4. mars 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
Staðsetning
Skólagerði 1, 200 Kópavogur
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)

Kennarar - Leikskólinn Vesturkot
Hafnarfjarðarbær

Skólastjóri - Þorláksskóli
Þorláksskóli

Leikskólakennari óskast á Heilsuleikskólann Holtakot
Garðabær

Aðstoðarleikskólastjóri - Hraunvallaleikskóli
Hafnarfjarðarbær

Forfallakennari - Hraunvallaskóli
Hafnarfjarðarbær

Sérkennari/þroskaþjálfi - Leikskólinn Hlíðarendi
Hafnarfjarðarbær

Skólaliði við Grunnskóla Fáskrúðsfjarðar
Grunnskóli Fáskrúðsfjarðar

Leikskólakennari eða leiðbeinandi
Baugur

Þroskaþjálfi / Leikskólasérkennari
Baugur

Vogaskóli - kennari í sérdeild
Vogaskóli

Lead Teacher of Icelandic as an additional / foreign language - Starts August 2026
Landakotsskóli

Forfallakennari á yngra stigi
Fellaskóli