

Sumarstarf - frístundastarf fyrir fötluð börn og ungmenni - Kletturinn
Hafnarfjarðarbær óskar eftir jákvæðum og metnaðarfullum sumarstarfsmanni í Klettinn. Kletturinn er frístunda, - og virkniúrræði fyrir fötluð börn og ungmenni á aldrinum 10–20 ára. Um er að ræða 100% starf í aldursskiptum hópum þar sem boðið er upp á fjölbreytta afþreyingu og stuðning við ungmenni í atvinnutengdum virkniúrræðum.
Sumarstarfið hentar einstaklega vel þeim sem vilja starfa með börnum og ungmennum og taka þátt í skapandi og líflegu starfi. Markmiðið með starfinu er að þátttakendur fái tækifæri til að kynnast nýjum tómstundum, taki þátt í fjölbreyttum vinnuverkefnum og eflist félagslega.
Vinnutími er alla virka daga frá kl. 8:00–16:00 eða 08:30-16:30.
Helstu verkefni og ábyrgð
• Vera jákvæð fyrirmynd og hafa uppbyggileg áhrif á börn og ungmenni í daglegu lífi.
• Taka þátt í skipulagningu, undirbúningi og framkvæmd fjölbreytts tómstundastarfs í samstarfi við starfsfólk og þátttakendur.
• Skapa öruggt, virðingarfullt og jákvætt andrúmsloft, byggt á lýðræðislegum vinnubrögðum.
• Veita þátttakendum stuðning við athafnir daglegs lífs, eftir þörfum hvers og eins.
• Stuðla að sjálfstæði, félagsfærni og vellíðan einstaklinga í starfinu.
• Önnur verkefni samkvæmt starfslýsingu eða eftir beiðni yfirmanns.
Menntunar- og hæfniskröfur
• Reynsla af starfi með börnum og unglingum.
• Æskilegt er að hafa reynslu af starfi með fötluðum börnum eða ungmennum.
• Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð.
• Góð samskipta- og samstarfshæfni.
• Frumkvæði og jákvætt viðmót.
• Íslenskukunnátta er skilyrði.
Skilyrði
• Umsækjendur þurfa að hafa náð 18 ára aldri.
• Hreint sakavottorð er skilyrði.
Launakjör
Laun eru greidd samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Starfsmannafélags Hafnarfjarðar.
Frekari upplýsingar um starfið veita:
Auður Björk Kvaran, [email protected]
Sandra Björk Halldórsdóttir, [email protected]
Erna Sóley Stefánsdóttir, [email protected]
Sími: 565-5100
Umsóknarfrestur er til og með 13. mars 2026.
Umsókn skal fylgja ferilskrá.
Vakinn er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagsins
Íslenska





















