

Teymisstjóri í teymi íþróttafræðinga í geðþjónustu
Laus er til umsóknar staða teymisstjóra íþróttafræðinga í geðþjónustu Landspítala.
Leitað er að kraftmiklum íþróttafræðingi með góða samskiptafærni sem hefur áhuga á að taka þátt í að efla og þróa þjónustu íþróttafræðinga innan geðþjónustu. Viðkomandi mun hafa faglega forystu með störfum íþróttafræðinga í þjónustunni, taka virkan þátt í uppbyggingu á heilsueflandi þjónustu og efla notendamiðaða nálgun í nánu samstarfi við starfsfólk Batamiðstöðvar/ Virkniseturs, stjórnendur og næsta yfirmann.
Teymisstjóri vinnur þétt með verkefnastjóra og öðru starfsfólki Batamiðstöðvar/ Virkniseturs að uppbyggingu virkni og hreyfingar innan geðþjónustu. Teymisstjóri hefur aðsetur í Batamiðstöð/Virknisetri en vinnur þvert á einingar geðþjónustunnar. Batamiðstöð/ Virknisetur er staðsett bæði við Hringbraut og á Kleppi. Þar er boðið upp á virkniúrræði og leiðir til að auka almenna vellíðan og lífsgæði fyrir notendur geðþjónustu. Til stendur að auka áherslu á heilbrigðan lífsstíl enn frekar fyrir notendur á legudeildum.
Starfshlutfall er 100% og veitist starfið frá 1. apríl 2026 eða eftir nánara samkomulagi. Næsti yfirmaður er forstöðuhjúkrunarfræðingur kjarna 1 í Geðþjónustu.
- Yfirsýn yfir starfsemi og þjónustu íþróttafræðinga í geðþjónustu og forgangsröðun verkefna þvert á einingar
- Þróa og efla hlutverk og þjónustu íþróttafræðinga í geðþjónustu Landspítala þvert á einingar
- Samhæfa og samþætta störf íþróttafræðinga
- Þátttaka í umbóta-, gæða- og vísindastarfi
- Stuðlar að liðsheild og menningu sálræns öryggis
- Háskólamenntun á sviði íþróttafræða
- Reynsla af starfi í geðþjónustu Landspítala er kostur
- Leiðtogahæfni og frumkvæði
- Mjög góð samskiptahæfni, skipulagsfærni og áreiðanleiki
- Góð íslensku- og enskukunnátta er skilyrði
Íslenska
Enska




























































