

Félagsráðgjafi - Heilsugæslan Hvammi
Laust er til umsóknar 40 - 50% ótímabundið starf félagsráðgjafa við Heilsugæsluna Hvammi. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf 1. maí nk. eða samkvæmt samkomulagi.
Um er að ræða ábyrgðarmikið og krefjandi starf á spennandi vettvangi fyrir félagsráðgjafa sem hefur áhuga á nýsköpun og þróun innan heilsugæslu. Félagsráðgjafi starfar í þverfaglegu teymi með læknum, hjúkrunarfræðingum, sálfræðingum og öðru fagfólki í fjölbreyttu og metnaðarfullu starfsumhverfi sem er í stöðugri þróun.
Heilsugæslan er fyrsti viðkomustaður í heilbrigðisþjónustunni þar sem mætt er ólíkum þörfum notenda í nærumhverfi þeirra og þeim veittar leiðbeiningar inn í önnur úrræði heilbrigðiskerfisins eftir þörfum. Unnið er markvisst að þróun þjónustu með það að leiðarljósi að bæta þjónustu við skjólstæðinga.
Nánari upplýsingar um starfsemina má finna á vef Heilsugæslunnar: www.heilsugaeslan.is.
- Þátttaka í þróun og uppbyggingu félagsþjónustu í heilsugæslu
- Teymisvinna með læknum, hjúkrunarfræðingum, ljósmæðrum, riturum og sálfræðingum
- Einstaklingsviðtöl og ráðgjöf varðandi framfærsluúrræði, félagsleg úrræði og réttindamál
- Fjölskylduráðgjöf af ýmsum toga
- Samstarf við aðrar stofnanir og þjónustuveitendur, s.s. heilbrigðisstofnanir, þjónustumiðstöðvar, starfsendurhæfingu, TR, SÍ o.fl.
- Leyfi frá landlækni til að starfa sem félagsráðgjafi (skilyrði)
- Reynsla af sambærilegu starfi er æskileg
- Faglegur metnaður og áhugi á uppbyggingu félagsþjónustu í heilsugæslu
- Sjálfstæði, frumkvæði og lausnamiðuð nálgun
- Reynsla og áhugi á þverfaglegri teymisvinnu
- Góð samskiptahæfni, lipurð og sveigjanleiki
- Góð íslenskukunnátta (skilyrði)
- Góð almenn tölvukunnátta
- Heilsustyrkur
- Samgöngustyrkur
Íslenska
Enska

















