SÁÁ
SÁÁ
SÁÁ

Aðstoðarmaður í fíknimeðferð - meðferðarfulltrúi

SÁÁ er í forystuhlutverki í meðferð fíknsjúkdóma og leggur áherslu á þverfaglega teymisvinnu. Við leitum eftir öflugu fólki til að koma og vera með okkur sem hluti af vaktteymi í heilbrigðisþjónustu þar sem starfa saman áfengis- og vímuefnaráðgjafar, hjúkrunarfræðingar, læknar, sjúkarliðar, sálfræðingar, félagsráðgjafa og nemar í heilbrigðisvísindum.

Markmiðið með þessu teymi er að standa vörð um og efla öryggi og þjónustu við inniliggjandi sjúklinga um kvöld og helgar. Starfið er samkvæmt Handbók vaktteymis. Um er að ræða sumarstarf um kvöld og helgar á Vík, Kjalarnesi

Helstu verkefni og ábyrgð
  • samskipti, hvatning, leiðbeiningar og víðtækur stuðningur við inniliggjandi sjúklinga um kvöld og helgar
  • virkur þátttakandi í þverfaglegu teymi
  • hvetja sjúklinga til að taka þátt í dagskrá og veita þeim liðsinni
  • fyrirlestrar og fræðsla til inniliggjandi sjúklinga
Menntunar- og hæfniskröfur
  • menntun sem nýtist í starfi, s.s. á sviði heilbrigðis- og/eða félagsvísinda er kostur
  • framúrskarandi samstarfshæfni og færni í samskiptum 
  • áhugi á að starfa með einstaklingum með fíknisjúkdóm skilyrði
  • stundvísi og reglusemi 
  • jákvætt hugarfar, metnaður og áhugi á að starfa við það að stuðla að bata fólks
  • sjálfstæð vinnubrögð og lausnarmiðuð hugsun
  • gilt ökuskírteini
Fríðindi í starfi
  • sveigjanlegur vinnutími
Auglýsing birt23. febrúar 2026
Umsóknarfrestur15. mars 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
Staðsetning
Vík, Kjalarnesi
Starfstegund
Hentugt fyrir
Starfsgreinar
Starfsmerkingar