

Sumarstörf - Aðstoðarfólk í sálfélagslega teymið á Vogi og Vík
SÁÁ leitar að öflugum og metnaðarfullum einstaklingum í sumarstörf í sálfélagslega teyminu á sjúkrahúsinu Vogi og á meðferðarstöðinni Vík. Um er að ræða 100% dagvinnu.
Frábært tækifæri fyrir fólk í námi, á sviði sálfræði, félagsráðgjafar eða öðru sambærilegu, að fá reynslu af faglegu meðferðarstarfi undir handleiðslu.
Starfið felst meðal annars í þátttöku í meðferðarstarfi sálfélagslega teymisins og stuðningi við inniliggjandi sjúklinga í átt að bata og betra lífi. Hjá SÁÁ er veitt sérhæfð meðferð í öruggu og styðjandi umhverfi. Unnið er í þverfaglegu teymi þar sem áhersla er lögð á fagmennsku, hlýju, virðingu og samvinnu.
-
Þátttaka í daglegu meðferðarstarfi og teymisvinnu
-
Stuðningur og aðstoð í meðferð inniliggjandi sjúklinga
-
Þátttaka í fræðslu, hópastarfi og einstaklingsviðtölum
-
Teymisvinna og samvinna við aðrar starfstéttir
- Stúdentspróf
- Menntun af heilbrigðis- eða félagsvísindasviði mikill kostur
- Reynsla af heilbrigðis,- félags- eða þjónustustörfum kostur
- Framúrskarandi færni í mannlegum samskiptum og til að vinna í teymi
- Góð skipulagshæfni og hæfni til að forgangsraða verkefnum
- Ábyrgðarkennd, sjálfstæði og vönduð vinnubrögð
- Stytting vinnuvikunnar
- Niðurgreiddur heitur matur í hádeginu
- Handleiðsla og góð innleiðing í starfi
Íslenska










