SÁÁ
SÁÁ
SÁÁ

Aðstoðarmaður í meðferðarteymi í áfengis- og vímuefnameðferð

Laus er til umsóknar staða aðstoðarmanns í meðferðarteymi á meðferðarstöðinni Vík á Kjalarnesi.

SÁÁ er leiðandi í heilbrigðisþjónustu við fólk með fíknsjúkdóm og fjölskyldur þeirra og saman sköpum við allt annað líf. Á Vík er veitt sérhæfð meðferð í öruggu og styðjandi umhverfi þar sem lögð er áhersla á fagmennsku, samfellu og hlýlegt andrúmsloft.

Við leitum að ábyrgum, skipulögðum og þjónustuliprum einstaklingi sem vill taka virkan þátt í daglegu starfi meðferðar og styðja bæði við skjólstæðinga og meðferðarteymi.

Um er að ræða fjölbreytt starf sem sameinar þætti úr ritara-, umönnunar- og viðveruhlutverki.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Virk þátttaka í daglegri starfsemi meðferðar
  • Stuðningur og upplýsingagjöf til skjólstæðinga 
  • Umsjón með innritun og útskrift skjólstæðinga
  • Umsjón með pöntunum, birgðastöðu og eftirfylgni með rekstrartengdum atriðum
  • Undirbúningur gagna og verkefna fyrir meðferð
  • Stuðningur við meðferðarteymi
  • Önnur tilfallandi verkefni eftir þörfum

Starfið krefst nærveru, yfirvegunar og hæfni til að takast á við fjölbreytt verkefni í lifandi og krefjandi umhverfi.

Menntunar- og hæfniskröfur
  • Stúdentspróf eða sambærileg menntun
  • Menntun af heilbrigðis- eða félagsvísindasviði kostur
  • Reynsla af heilbrigðis,- félags- eða þjónustustörfum
  • Framúrskarandi færni í mannlegum samskiptum og til að vinna í teymi
  • Góð skipulagshæfni og hæfni til að forgangsraða verkefnum
  • Ábyrgðarkennd, sjálfstæði og vönduð vinnubrögð
  • Góð íslenskukunnátta
Fríðindi í starfi
  • Stytting vinnuvikunnar
  • Heilsustyrkur 
  • Niðurgreiddur heitur matur í hádeginu
  • Tækifæri til endurmenntunar og starfsþróunar 
Auglýsing birt20. febrúar 2026
Umsóknarfrestur1. mars 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Vík Kjalarnesi
Starfstegund
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar