Skammtímadvöl Leirvogstungu
Skammtímadvöl Leirvogstungu
Skammtímadvöl Leirvogstungu

Starfsmaður í Skammtímadvöl fyrir börn

Við veitum börnum með flókinn og fjölþættan vanda einstaklingsmiðaða sólarhringsþjónustu þar sem markmið okkar er að búa börnunum hlýlegt, friðsælt og öruggt heimili með hliðsjón af einstaklingsbundnum þroska, getu og aldri þeirra. Jafnframt að tryggja góð og jákvæð samskipti við foreldra/forsjáraðila.
Við leitumst eftir öflugu starfsfólki sem vill taka þátt í þróun starfseminnar.

Mikið er lagt upp úr úr góðri liðsheild og samvinnu á staðnum.

Leitað er að starfsfólki í 40-90% starfshlutfall frá byrjun apríl. Um er að ræða tímabundin störf með möguleika á framlengingu.

Um er að ræða sólarhringsþjónustu svo gengið er út frá því að starfsfólk vinni á fjölbreyttum vöktum (kvöld-, helgar- og næturvöktum).

Í Skammtímadvölinni er unnið eftir hugmyndafræði þjónandi leiðsagnar og sjálfstæðs lífs og skv. lögum um fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir nr. 38/2018.

Mosfellsbær er öflugt og eftirsótt sveitafélag þar sem gildin virðing, jákvæðni, framsækni og umhyggja eru leiðarljós starfsmanna í daglegu starfi.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Veita þjónustunotendum einstaklingsmiðaðan stuðning við athafnir daglegs lífs 
  • Hvetja og styðja þjónustunotendur til sjálfstæðs lífs með valdeflandi stuðningi og aðstoð
  • Stuðla að markvissu og skilvirku samstarfi við þjónustunotendur, aðstandendur, fagaðila og aðra þá sem koma að þjónustu við þjónustunotendur
  • Virkja þjónustunotendur til þátttöku í samfélaginu
  • Veita þjónustunotendum félagsskap og taka þátt í skipulagi hvers dags
  • Almenn heimilisstörf
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Reynsla af starfi með fötluðum æskileg.
  • Áhugi á málefnum fatlaðs fólks og reynsla af störfum með fötluðu fólki er mikill kostur
  • Góð þjónustulund og jákvæðni í starfi
  • Framtaksemi og samviskusemi
  • Frumkvæði, sjálfstæði og metnaður í starfi
  • Hreint sakavottorð
  • Aldursskilyrði er 20 ár
  • Góð íslenskukunnátta
  • Bílpróf
Auglýsing birt23. febrúar 2026
Umsóknarfrestur6. apríl 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
EnskaEnska
Nauðsyn
Meðalhæfni
Staðsetning
Þverholt 2, 270 Mosfellsbær
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.ÁreiðanleikiPathCreated with Sketch.FagmennskaPathCreated with Sketch.Fljót/ur að læraPathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.JákvæðniPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.Sveigjanleiki
Hentugt fyrir
Starfsgreinar
Starfsmerkingar