

Sálfræðingur fullorðinna á HVE
Heilbrigðisstofnun Vesturlands auglýsir eftir sálfræðingi fullorðinna í 100% stöðu. Starfið er hluti af sálfræðingsþjónustu á heilsugæslustöðvum HVE. Staðsetning fer eftir samkomulagi en HVE hefur átta starfsstöðvar á Vesturlandi https://island.is/s/hve/starfsstodvar-hve. Þá er möguleiki á fjarvinnu að hluta með samkomulagi við yfirsálfræðing.
Um er að ræða fjölbreytt starf í þverfaglegu umhverfi sem býður upp á víðtæka möguleika á þróun í starfi fyrir sálfræðinga.
Nánari upplýsingar um sálfræðiþjónustu á heilsugæslustöðvum HVE má finna á https://island.is/s/hve/salfraedingar-hve
-
Meðferð og greining
-
Hópmeðferð
-
Vinna eftir klínískum leiðbeiningum
-
Námskeiðshald, ráðgjöf og fræðsla
-
Þátttaka í skipulagningu sálfræðiþjónustu heilsugæslunnar á Vesturlandi
-
Réttindi til að starfa sem sálfræðingur á Íslandi er skilyrði.
-
Skilyrði að umsækjendur séu með staðfest starfsleyfi landlæknis.
-
-
Reynsla af meðferðarvinnu og greiningu æskileg.
-
Þekking og reynsla af hugrænni atferlismeðferð er kostur.
-
Reynsla af notkun sálfræðilegra prófa og greiningartækja æskileg.
-
Samskiptahæfni og sveigjanleiki.
-
Ökuréttindi.
-
Góð íslenskukunnátta er skilyrði.
Íslenska
Enska










