
BIOEFFECT hf.
BIOEFFECT eru margverðlaunaðar íslenskar húðvörur sem byggja á íslensku hugviti, vísindum og virkni. Virku efnin í húðvörulínunni eru framleidd með aðferðum plöntu-líftækni, svokallaðir vaxtarþættir – framleiddir í byggi í gróðurhúsi ORF líftækni á Íslandi. EGF (Epidermal growth factor) er þekktasti vaxtarþátturinn.
BIOEFFECT er með eigið vísinda- og þróunarteymi á Íslandi sem sér um að viðhalda vörulínunni og þróa nýjar vörur. Vöruþróun og framleiðsla fer að öllu leyti fram í höfuðstöðvum félagsins á Íslandi, Kópavogi.
Húðvörurnar eru seldar um allan heim, á netinu og í verslunum í yfir 20 löndum. BIOEFFECT þjónustar Ísland, Bretland og Bandaríkin en aðrir markaðir um 20 talsins eru reknir í samstarfi við dreifiaðila.

Framkvæmdastjóri rannsókna og þróunar
BIOEFFECT leitar að öflugum og reynslumiklum stjórnanda til að leiða rannsóknar- og vöruþróunarstarf fyrirtækisins. Um er að ræða lykilhlutverk þar sem viðkomandi ber ábyrgð á þróun og eflingu vöruframboðs BIOEFFECT, með sterkri vísindalegri nálgun og áherslu á gæði, öryggi og virkni.
Framkvæmdastjóri rannsókna og þróunar leiðir faglegt rannsóknastarf, vinnur að nýsköpun og kemur fram fyrir hönd BIOEFFECT til að kynna vörur og vísindalegan grunn þeirra.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Leiða rannsóknar-, nýsköpunar- og vöruþróunarstarf BIOEFFECT
- Þróa og móta núverandi og nýjar vörur og tryggja öryggi, skráningu og virkni þeirra
- Greina ný tækifæri til áframhaldandi þróunar vörulínu BIOEFFECT
- Afla þekkingar á nýjum innihaldsefnum og nýtingu vaxtarþátta til nýsköpunar
- Hafa yfirumsjón með rannsóknum á húðvörum, þar á meðal húð- og virknirannsóknum, bæði innan BIOEFFECT og hjá óháðum aðilum
- Ábyrgð á vöruprófunum, m.a. húðmælingum, ofnæmis- og örveruprófunum
- Undirbúa vísindaleg gögn og upplýsingar fyrir sölu- og markaðsdeildir
- Taka virkan þátt í stefnumótun fyrirtækisins og sitja í vöruráði BIOEFFECT
- Vera hluti af stjórnendateymi og framkvæmdastjórn BIOEFFECT
Menntunar- og hæfniskröfur
- Háskólamenntun á sviði lífvísinda, efnafræði, lyfjafræði, líftækni eða sambærilegu fagi
- Framhaldsmenntun (MSc eða PhD) er kostur
- Víðtæk reynsla af rannsóknum og vöruþróun, helst innan húðvara-, lyfja- eða líftæknigeirans
- Reynsla af þróun og innleiðingu nýrra vara á alþjóðlegum markaði
- Góð þekking á regluverki húðvara, m.a. öryggismati, skráningum og kröfum eftirlitsaðila á erlendum mörkuðum
- Reynsla af samstarfi við óháða rannsóknaraðila, rannsóknastofur og prófunaraðila
- Geta til að greina og miðla vísindalegum gögnum á skýran og aðgengilegan hátt
- Framúrskarandi enskukunnátta í ræðu og riti
- Sterkir leiðtogahæfileikar og reynsla af stjórnun teyma og verkefna
- Skipulagshæfni, frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð
- Góð samskiptafærni og hæfni til að vinna þvert á deildir
- Áhugi á nýsköpun, vísindum og gæðum í húðvörum
Auglýsing birt16. febrúar 2026
Umsóknarfrestur2. mars 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
EnskaNauðsyn
Staðsetning
Víkurhvarf 7, 203 Kópavogur
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)

Sálfræðingur barna á HVE
Heilbrigðisstofnun Vesturlands

Sálfræðingur fullorðinna á HVE
Heilbrigðisstofnun Vesturlands

Forstöðumaður einstaklings- og fyrirtækjalausna
Orka náttúrunnar

Framkvæmdastjóri – BSRB
BSRB

Viðskiptastjóri
Vistor

Laboratory Physician/scientist - Genetics and Cytogenomics Laboratories (One year position)
Landspítali

Læknir/ vísindamaður - Tímabundið starf í 1 ár í klínískum erfða- og litningarannsóknum
Landspítali

Framkvæmdastjóri viðskipta
Isavia / Keflavíkurflugvöllur

Forstöðumaður Plastiðjan Bjarg – Iðjulundur
Akureyri

Þjónustustjóri endurhæfingar- og öldrunarlækningaþjónustu Sjúkrahússins á Akureyri
Sjúkrahúsið á Akureyri

Geislafræðingur eða geislafræðinemi
Intuens Segulómun ehf.

Við leitum að leiðtoga í hlutverk framkvæmdastjóra Distica.
Distica