Heilsugæsla Höfuðborgarsvæðisins
Heilsugæsla Höfuðborgarsvæðisins
Heilsugæsla Höfuðborgarsvæðisins

Hjúkrunarfræðingur - Upplýsingamiðstöð HH

Vilt þú verða hluti af öflugum hópi hjúkrunarfræðinga á Upplýsingamiðstöð HH?

Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins auglýsir eftir hjúkrunarfræðingum til starfa við Upplýsingamiðstöð HH. Um er að ræða tímabundin störf í breytilegu starfshlutfalli á öllum tímum sólarhringsins. Vinnufyrirkomulag er samkomulagsatriði. Æskilegt er að viðkomandi hefji störf 1. apríl nk. eða eftir nánara samkomulagi.

Við leitum að hjúkrunarfræðingum sem eru tilbúnir að takast á við fjölbreytt, krefjandi og skemmtileg verkefni á spennandi vettvangi sem er í sífelldri þróun. Upplýsingamiðstöðin leggur áherslu á þverfaglegt samstarf og góða teymisvinnu.

Ef þú hefur áhuga á fjölbreyttri vinnu og framþróun í heilsugæslunni þá hvetjum við þig til að sækja um.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Veita símaráðgjöf og forflokka erindi til heilsugæslustöðva
  • Sinna ferðamannaheilsuvernd
  • Önnur þróunarverkefni í fjarheilbrigðisþjónustu innan heilsugæslunnar
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Íslenskt hjúkrunarleyfi
  • Sjálfstæði í starfi, skipulagningarhæfni og öguð vinnubrögð
  • Reynsla af heilsugæslu er æskilegt
  • Reynsla af störfum á heilbrigðisstofnun á landsbyggðinni er kostur
  • Mikill sveigjanleiki og samskiptahæfni
  • Geta til að vinna undir álagi
  • Íslensku- og enskukunnátta í ræðu og riti skilyrði
  • Góð tölvukunnátta skilyrði
Fríðindi í starfi
  • Heilsustyrkur
  • Samgöngustyrkur
Auglýsing birt23. febrúar 2026
Umsóknarfrestur9. mars 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
EnskaEnska
Nauðsyn
Meðalhæfni
Staðsetning
Þönglabakki 1, 109 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.JákvæðniPathCreated with Sketch.Samskipti í símaPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.Teymisvinna
Starfsgreinar
Starfsmerkingar