

Hjúkrunarnemar óskast á blóð- og krabbameinslækningadeild
Við óskum eftir áhugasömum hjúkrunarnemum á 1.-4. ári til starfa, bæði í tímabundið hlutastarf meðfram námi og til sumarafleysinga.
Á deildinni gefst frábært tækifæri til að fá reynslu og innsýn í fjölþætta hjúkrun sjúklinga með krabbamein og illkynja blóðsjúkdóma.
Deildin er 30 rúma legudeild þar sem lögð er áhersla á einstaklingsmiðaða og heildræna þjónustu, fjölskylduhjúkrun, teymisvinnu og góðan starfsanda. Mikil áhersla er á gæða- og umbótavinnu á deildinni. Við bjóðum upp á einstaklingshæfða starfsaðlögun á deildinni, markvissa fræðslu og við leggjum áherslu á góðan stuðning við nýráðna starfsmenn.
Upphafsdagur starfa sem og starfshlutfall er samkomulag.
Vinnuvika starfsfólks í fullri vaktavinnu er 36 stundir og getur orðið minni eftir samsetningu vakta. Markmiðið er að stuðla að betri heilsu og öryggi starfsfólks og auka möguleika þess til að samþætta betur vinnu og einkalíf.
Íslenska




























































