
Heilsuvernd Hjúkrunarheimili
Heilsuvernd Hjúkrunarheimili veita almenna og sérhæfða dag- og sólarhringsþjónustu fyrir aldraða og aðra sem búa við skerta færni vegna langvinnra eða flókinna veikinda.
Um er að ræða fjölbreytta og áhugaverða starfsemi sem er í stöðugri þróun. Unnið er eftir Eden hugmyndafræðinni með áherslu á sjálfstæði, hlýjan heimilisbrag og lífsgæði íbúa sem og annarra notenda þjónustunnar.
Heilsuvernd Hjúkrunarheimili er með starfsemi á tveimur stöðum á Akureyri;
Hlíð, Austurbyggð 17 og Lögmannshlíð, Vestursíðu 9.

Hjúkrunarfræðingar - sumarstörf
Heilsuvernd Hjúkrunarheimili óska eftir að ráða hjúkrunarfræðinga til sumarstarfa á Hlíð og í Lögmannshlíð. Við leitum að einstaklingum sem hafa jákvæðni og góð samskipti að leiðarljósi, eru sjálfstæðir í vinnubrögðum en vilja um leið vera hluti af sterku teymi og gjarnan vinna að nýjum hugmyndum og framþróun. Í boði er dagvinna sem og vaktavinna og starfshlutfall eftir samkomulagi.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Almenn hjúkrunarstörf og ábyrgð skv. lögum og reglugerðum
- Ábyrgð á að hjúkrun sé veitt í samræmi við hugmyndafræði Eden og skilgreind gæðaviðmið í þeim tilgangi að hámarka lífsgæði íbúa og viðhalda sjálfstæði þeirra
- Eftirlit og mat á gæðum hjúkrunar
- Starfinu fylgja mikil samskipti við íbúa, aðstandendur og samstarfsfólk og skal umhyggja og virðing endurspeglast í öllum þáttum starfsins
Menntunar- og hæfniskröfur
- Fullgilt próf og íslenskt starfsleyfi sem hjúkrunarfræðingur
- Áhugi á hjúkrun og þjónustu við aldraða og þá sem búa við langvinn og/eða alvarleg veikindi er skilyrði og kostur að búa yfir reynslu á því sviði
- Vilji og áhugi til að starfa eftir Eden hugmyndafræðinni
- Reynsla og þekking á sviði líknar- og lífslokameðferðar er kostur
- Frumkvæði sjálfstæð vinnubrögð og hæfileikar í mannlegum samskiptum
- Að geta unnið sem hluti af heild og með öðrum í þeim tilgangi að hámarka árangur
- Góð kunnátta í íslensku
Auglýsing birt23. febrúar 2026
Umsóknarfrestur15. mars 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
EnskaNauðsyn
Staðsetning
Austurbyggð 17, 600 Akureyri
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (4)
Sambærileg störf (12)

Nemar í læknis- og hjúkrunarfræðum - sumarstörf
Heilsuvernd Hjúkrunarheimili

Aðstoðardeildarstjóri hjúkrunar á taugaendurhæfingardeild K2
Landspítali

Hjúkrunarfræðingur í áhættumati persónutrygginga
TM

Hjúkrunarfræðingur - Upplýsingamiðstöð HH
Heilsugæsla Höfuðborgarsvæðisins

Vaktstjórar sumarstarf - Hjúkrunar- og læknanemar
Sóltún heilbrigðisþjónusta

Hjúkrunarfræðingur óskast
Læknastofur Reykjavíkur

Hjúkrunarnemar óskast á blóð- og krabbameinslækningadeild
Landspítali

Sumarafleysing fyrir hjúkrunar- og læknanema - Nesvellir
Hrafnista

Hjúkrunarnemar á 2.- 4. ári - hlutastörf með námi á kviðarhols- og þvagfæraskurðdeild
Landspítali

Sumarstörf 2026 - nemi í hjúkrunarfræði
SÁÁ samtök

Hjúkrunarfræðingur í Endurhæfingarteymi
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið

Hjúkrunarfræðingur á dagdeild barna
Landspítali