
Alma íbúðafélag
Alma er sjálfstætt fasteignafélag í eigu Langasjávar ehf. Félagið á og rekur fjölda fasteigna, bæði íbúðar- og atvinnuhúsnæði, víðsvegar um landið. Stefna Ölmu er að bjóða viðskiptavinum sínum upp á öruggt og vandað leiguhúsnæði, hátt þjónustustig og sveigjanleika, í því skyni að gera leigumarkaðinn á Íslandi faglegri, fjölskylduvænni og traustari.

Alma íbúðafélag, þjónustufulltrúi
Alma íbúðafélag óskar eftir að ráða þjónustufulltrúa í fullt starf. Starfið felur í sér almenna þjónustu við viðskiptavini Ölmu. Starfsmaður ber ábyrgð á símsvörun og svörun innsendra erinda viðskiptavina ásamt almennri leiguumsýsla, umsjón með gerð og skráningu leigusamninga og sýningum á íbúðum.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Símsvörun
- Aðstoða viðskiptavini Ölmu í móttöku
- Svörun innsendra erinda vegna þjónustu og viðhalds
- Almenn leiguumsýsla og umsjón með gerð og skráningu leigusamninga
- Þjónusta við viðskiptavini
- Sýningar á íbúðum félagsins
- Almenn skrifstofustörf
- Önnur tilfallandi verkefni
Menntunar- og hæfniskröfur
- Lágmarkskrafa er framhaldsskólapróf
- Starfsmaður þarf að geta unnið sjálfstætt, hafa frumkvæði og búa yfir góðri aðlögunarhæfni
- Krafa um mikla hæfni í mannlegum samskiptum
- Framúrskarandi íslenskukunnátta og góð færni í ensku
- Færni í að meta upplýsingar og taka rökréttar ályktarnir
- Færni í skipulagningu- og forgangsröðun
- Færni í tölvunotkun, þ.á.m. færni í notkun ritvinnsluforrita og tölvupóstssamskiptum.
- Bílpróf og umráð yfir bíl.
Auglýsing birt27. febrúar 2026
Umsóknarfrestur15. mars 2026
Tungumálahæfni
EnskaNauðsyn
ÍslenskaNauðsyn
Staðsetning
Sundagarðar 8, 104 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
FrumkvæðiÖkuréttindiSamningagerðSamskipti með tölvupóstiSkipulag
Vinnuumhverfi
Hentugt fyrir
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (1)
Sambærileg störf (12)

Skrifstofustarf.Tölvukunnátta,Skipulag og Gagnafærsla í Excel. Payday og Monday, Hlutastarf
Next Level Smíði ehf.

Þjónustufulltrúi
Nathan hf.

Ábyrgðarfulltrúi
Bílaumboðið Askja

Starfsmaður á skrifstofu
Húnabyggð

Verkefnastjóri hjá Sorgarmiðstöð
Sorgarmiðstöð, félagasamtök

Bókhald
Fyrirtæki á höfuðborgarsvæðinu

Sumarstarf í launadeild
Sumarstörf - Kópavogsbær

Patreksfjörður - Fulltrúi á pósthúsi
Pósturinn

Sölumaður í verslun
Búvís ehf

Sumarstarfsmaður í viðburða- og kynningarmálum.
Íþróttabandalag Reykjavíkur

Sumarstarfsmaður á viðburðasviði
Íþróttabandalag Reykjavíkur

Bókari í hagdeild
Samskip