

Verkefnastjóri hjá Sorgarmiðstöð
Sorgarmiðstöð leitar að verkefnastjóra í sveigjanlegt starfshlutfall. Í starfinu felst umsjón með hópastarfi og jafningjastuðningi, gagnagreiningu, skýrslugerð og þróun á rekstrarferlum. Lögð er áhersla á skipulagshæfileika, þjónustulund og reynslu í verkefnastjórnun. Hjarta fyrir málstað syrgjenda er grundvallarskilyrði.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Umsjón yfir skipulagi á hópastarfi og jafningjastuðningi
- Utanumhald á skráningum þjónustuþega í gagnakerfi
- Greining á skráningargögnum og gerð reglubundinna skýrslna til stuðnings ákvarðanatöku
- Söfnun, úrvinnsla og túlkun á endurgjöf frá þjónustumati og tillögur að úrbótum á grunni niðurstaðna
- Aðstoð við þróun og innleiðingu sjálfvirkra ferla í rekstri Sorgarmiðstöðvar
- Samskipti og samráð við sjálfboðaliða, samstarfsaðila, þjónustuþega og aðra hagaðila
- Önnur tilfallandi verkefni
Menntunar- og hæfniskröfur
- Háskólapróf sem nýtist í starfi er kostur
- Reynsla og/eða menntun í verkefnastjórnun
- Reynsla af gagnagreiningu, skýrslugerð og mati á þjónustugæðum er talin sérstaklega til góðs
- Þekking og reynsla af sjálfvirkum ferlum og hugbúnaðarlausnum því tengdu
- Góð tölvukunnátta, þar á meðal notkun á Office 365, skráningarkerfi og/eða öðrum verkfærum sem nýtast í daglegum rekstri
- Framúrskarandi skipulagshæfileikar, nákvæmni og gott verkvit með hæfni til að greina vandamál og finna lausnir á eigin vegum
- Framúrskarandi íslenska í ræðu og riti, góð enskukunnátta æskileg
- Þjónustulund og sterk hæfni í mannlegum samskiptum, m.a. í samskiptum við einstaklinga í viðkvæmri stöðu
- Þekking og reynsla af sorgarúrvinnslu og stuðningi við einstaklinga í sorgarferli er æskileg
- Hæfni til að vinna í hóp og þrífast í kraftmiklu og síbreytilegu starfsumhverfi
- Hugmyndauðgi, drifkraftur og jákvæðni í garð starfsins
- Hjarta fyrir málstað syrgjenda og aðstandenda þeirra
Fríðindi í starfi
- Fjölskylduvænn vinnustaður
- Sveigjanlegur vinnutími (að hluta)
- Sveigjanlegt starfshlutfall
Auglýsing birt27. febrúar 2026
Umsóknarfrestur20. mars 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
EnskaNauðsyn
Staðsetning
Suðurgata 41, 220 Hafnarfjörður
Starfstegund
Hæfni
ÁreiðanleikiAðlögunarhæfniFagmennskaGagnagreiningHeiðarleikiMannleg samskiptiSjálfstæð vinnubrögðSkipulagSveigjanleiki
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)

Bókari/uppgjörsaðili
HSE Bókhald & Uppgjör ehf.

Sumarstarf fyrir háskólanema - lánadeild
Brú lífeyrissjóður

Sumarstarf fyrir háskólanema - réttindasvið
Brú lífeyrissjóður

Bókari
Ívera ehf.

Bókavörður á Djúpavogi
Bókasafn Múlaþings

Þjónustufulltrúi á Stjórnstöð í sumar!
Securitas

Starfskraftur afgreiðslu á Akureyri
Frumherji hf

Viðskiptastjóri
Torcargo

Kennslufulltrúi í upplýsingatækni - Mennta- og lýðheilsusvið
Hafnarfjarðarbær

Þjónusturáðgjafi
Félagsbústaðir

Sumarstarf - Afgreiðsla umsókna um hjálpartæki (kjörið fyrir nema í sjúkraþjálfunarfræðum)
Sjúkratryggingar Íslands

Starf á fjármálasviði
Hafrannsóknastofnun