
Hafrannsóknastofnun
Hafrannsóknastofnun er stærsta rannsóknastofnun landsins á sviði haf- og vatnarannsókna og gegnir auk þess ráðgjafarhlutverki varðandi skynsamlega nýtingu og verndun auðlinda hafs og vatna. Stofnunin heyrir undir matvælaráðuneytið.
Stofnunin rekur, auk aðalstöðvar í Hafnarfirði, starfsstöðvar vítt og breitt um landið, tilraunaeldisstöð, tvö rannsóknaskip og hjá stofnuninni starfa að jafnaði um 190 manns í fjölbreyttum störfum.

Starf á fjármálasviði
Hafrannsóknastofnun leitar að metnaðarfullum einstaklingi í fullt starf á fjármálasviði stofnunarinnar. Um er að ræða fjölbreytt ábyrgðarstarf fyrir einstakling sem er nákvæmur, lipur í mannlegum samskiptum, hefur vilja og hæfni til að starfa í teymi, tilbúinn að tileinka sér nýjungar og hefur metnað til að ná góðum árangri.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Færsla bókhalds, afstemmingar og uppgjör fyrir stofnunina.
- Uppgjör og skil virðisauka.
- Ábyrgð á yfirsýn yfir kostnaðarskýrslukerfi.
- Skil launatengdra gjalda til skattyfirvalda.
- Umsjón með ferðakerfi; yfirferð yfir ferðabeiðnir, gerð ferðauppgjöra og bókun ferðakostnaðar.
- Taka þátt í þróa verklag í verkefnum sviðsins í samræmi við lög og önnur sett viðmið sem í gildi eru hverju sinni.
- Taka þátt í mánaðarlegri útgáfu fjárhagsupplýsinga fyrir haghafa í samstarfi við aðra starfsmenn og stjórnendur.
- Miðlun upplýsinga og fræðsla til starfsfólk.
- Þátttaka í gerð og þróun á mælaborði fyrir stjórnendur og starfsmenn.
- Þátttaka í gerð árshlutauppgjöra og ársreiknings.
- Þátttaka í stefnumótunar- og umbótastarfi.
- Önnur verkefni sem til falla eftir atvikum.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Góð almenn menntun eða haldbær reynsla sem nýtist í starfi, háskólapróf eða viðurkenndur bókari er kostur.
- Lágmark 4 ára starfsreynsla sem nýtist í starfi
- Jákvætt viðmót, samstarfsvilji og lausnamiðuð nálgun.
- Ríkir samskiptahæfileikar, þjónustulund og hæfni til að vinna í teymi.
- Gagnrýnin hugsun, greiningarhæfni og sjálfstæði í vinnubrögðum.
- Marktæk reynsla af vinnu við fjárhagskerfi, Excel og almenn góð stafræn hæfni.
- Þekking og reynsla á notkun fjárhagskerfa ríkisins (Orri) er kostur.
- Góð íslensku og enskukunnátta í töluðu og rituðu máli.
Auglýsing birt8. apríl 2026
Umsóknarfrestur20. apríl 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
EnskaNauðsyn
Staðsetning
Fornubúðir 5, 220 Hafnarfjörður
Starfstegund
Hæfni
ÁhættugreiningÁreiðanleikiAðlögunarhæfniDrifkrafturFagmennskaFljót/ur að læraFrumkvæðiHeiðarleikiHugmyndaauðgiInnleiðing ferlaMetnaðurNákvæmniNýjungagirniOpinber stjórnsýslaSamviskusemiSjálfstæð vinnubrögðSkýrslurSveigjanleikiTeymisvinnaUppbygging vinnsluskrár
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)

Starf á fjármálasviði Iceland Seafood
Iceland Seafood

Þjónusturáðgjafi
Alþjóðasetur

Ráðgjafi í þjónustuteymi
dk hugbúnaður ehf.

Aðalbókari á Akranesi
Ritari

Bókari
KANSLER heildsala

Bókun og innheimta
Bílaumboðið Askja

Öflugur bókari
Harpa tónlistar- og ráðstefnuhús

Fulltrúi í fjárreiðudeild - sumarstarf
Garri

Þjónustuteymi Orkunnar
Orkan

Bókari
Pekron

Bókhaldsstarf 50-70% starfshlutfall
Brynja leigufélag ses.

Sérfræðingur á fjármálasviði
Brú Talent