Hafrannsóknastofnun
Hafrannsóknastofnun
Hafrannsóknastofnun

Sérfræðingur í vistfræði ferskvatnsfiska - fiskifræðingur

Hafrannsóknastofnun, rannsókna- og ráðgjafarstofnun hafs og vatna, hefur laust til umsóknar starf sérfræðings í vistfræði ferskvatnsfiska - fiskifræðings. Í starfinu felst vinna við rannsóknir á ferskvatnsfiskum, ráðgjöf varðandi sjálfbæra nýtingu, mat á áhrifum umhverfisþátta og framkvæmda. Lögð er áhersla á að ráða lausnamiðaðan einstakling sem hefur góða færni í að vinna sjálfstætt og í teymi.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Vinna við rannsóknir á ferskvatnsfiskum.
  • Vinna að söfnun og greiningu gagna.
  • Mat á áhrifum umhverfisþátta á villta stofna laxfiska.
  • Mat á áhrifum framkvæmda á villta stofna laxfiska. 
  • Miðlun upplýsinga, ritun skýrslna og fræðigreina.
  • Þátttaka í samstarfi við innlenda og erlenda samstarfsaðila.
  • Virk þátttaka í teymum á fagsviði Hafrannsóknastofnunar.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Meistara- eða doktorspróf í líffræði með fiska sem sérgrein.
  • Reynslu af rannsóknarvinnu er æskileg. 
  • Færni í greiningu gagna. 
  • Þekking á gagnavinnsluhugbúnaði (s.s. R, Pyton) og gerð líkana.
  • Metnaður, frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum.
  • Góðir skipulags-og samskiptahæfileikar.
  • Jákvætt viðmót, samstarfsvilji og hæfni til að vinna í teymi.
  • Góð íslensku og enskukunnátta í töluðu og rituðu máli. Þekking á norðurlandamáli er kostur.
Auglýsing birt7. apríl 2026
Umsóknarfrestur17. apríl 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
EnskaEnska
Nauðsyn
Framúrskarandi
Staðsetning
Fornubúðir 5, 220 Hafnarfjörður
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar