

Patreksfjörður - Fulltrúi á pósthúsi
Pósturinn óskar eftir að ráða einstakling í framtíðarstarf sem fulltrúi á pósthúsinu á Patreksfirði.
Óskað er eftir jákvæðum einstaklingi með ríka þjónustulund og góða samskiptafærni.
Fulltrúi aðstoðar afgreiðslustjóra við daglegan rekstur og er staðgengill hans. Helstu verkefni eru uppgjör, almenn afgreiðsla, framsetning vöru, eftirlit með þrifum og annað tilfallandi.
Um er að ræða fullt starf og vinnutíminn er 08:00-16:05 alla virka daga. Viðkomandi þarf að geta hafið störf sem fyrst.
Hæfnikröfur:
- Góð samskiptafærni og þjónustulund
- Góð almenn tölvukunnáttu og ritfærni
- Góð íslensku- og enskukunnátta
- Sjálfstæð og öguð vinnubrögð
- Færni til að leysa úr vandamálum
Umsóknarfrestur er til og með 21. mars 2026. Öllum umsækjendum verður svarað og farið er með umsóknir sem trúnaðarmál.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Sigurborg Þórsdóttir rekstrarstjóri - [email protected].
Hjá Póstinum starfar lausnamiðað starfsfólk sem tekur fagnandi á móti síbreytilegum áskorunum þar sem liðsheild, þjálfun og góður starfsandi er í forgrunni. Pósturinn leggur sitt lóð á vogarskálar til að stuðla að sjálfbærni og hefur uppfyllt öll markmið Grænna skrefa. Pósturinn er jafnlaunavottað fyrirtæki.
Íslenska
Enska










