
Húsasmiðjan
Húsasmiðjan er meðal stærstu verslunarfyrirtækja landsins og hluti af Bygma Gruppen A/S. Bygma rekur fjölmargar byggingavöruverslanir í Danmörku, Svíþjóð, Færeyjum og á Grænlandi. Ásamt því rekur fyrirtækið nokkur heildsölufyrirtæki á byggingavörumarkaði í Danmörku.
Húsasmiðjuverslanir eru 16 talsins og eru Blómavalsútibú í sjö þeirra. Jafnframt er rafiðnaðarverslunin Ískraft með fjögur útibú.
Hjá Húsasmiðjunni starfa um 500 starfsmenn vítt og breytt um landið sem hafa margskonar bakgrunn eins og pípari, blómaskreytir, bókari, smiður, viðskiptafræði, grafískur hönnuður, múrari og fleira og fleira.
Húsasmiðjan býður upp á lifandi starfsumhverfi og frábæran starfsanda. Við leggjum mikla áherslu á símenntun og fræðslu og að starfsmenn fái tækifæri til þess að eflast og þróast í starfi.

Verkefnastjóri fasteigna og bifreiða hjá Húsasmiðjunni
Umsjónaraðili ber ábyrgð á daglegu eftirliti, viðhaldi og rekstri fasteigna og bifreiða fyrirtækisins. Starfið felur í sér skipulag, eftirfylgni, kostnaðareftirlit og samhæfingu við verktaka, þjónustuaðila og aðra hluta fyrirtækisins. Viðkomandi tryggir að allar eignir séu öruggar, vel nýttar og í góðu ásigkomulagi.
Helstu verkefni og ábyrgð
Fasteignir
- Daglegt eftirlit með fasteignum fyrirtækisins um allt land
- Skipulag og framkvæmd reglubundins viðhalds
- Umsjón með viðgerðum, endurbótum og framkvæmdaverkefnum
- Samskipti við verktaka, húsfélög, þjónustuaðila og sveitarfélög
- Skjalavarsla fyrir teikningar, leyfi, þjónustusamninga og öryggisgögn
- Eftirlit með brunavörnum, öryggiskerfum og lögbundnu eftirliti
Bifreiðar og vélbúnaður
- Umsjón með bílaflota og tækjum fyrirtækisins
- Skipulag skoðana, þjónustu, viðgerða og dekkjaskipta
- Eftirlit með tryggingum, skráningum og akstursgögnum
- Ákvarðanir um endurnýjun, útboð og kaup á nýjum ökutækjum
- Umsjón með rekstrarkostnaði og eldsneytisnotkun
Menntunar- og hæfniskröfur
- Menntun í byggingartækni, verkfræðigreinum eða sambærileg reynsla af framkvæmdum
- Reynsla af viðhaldi fasteigna og/eða verkefnastjórnun framkvæmda
- Þekking á bílaflotaumsjón er kostur
- Góð tæknileg innsýn og hæfni til að lesa teikningar og skilja reglugerðir
- Skipulagshæfni, frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð
- Ökuréttindi
- Góð tölvukunnátta og reynsla af viðhaldskerfum er kostur
Auglýsing birt3. mars 2026
Umsóknarfrestur17. mars 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
EnskaNauðsyn
Staðsetning
Skútuvogur 16, 104 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (3)
Sambærileg störf (12)

Hvernig hafa húsin okkar það?
FSRE

Verkefnastjóri í Mannauðslausnum
Advania

Verkefnastjóri – stefna og fjárfestingar
Landsnet hf.

Verkefnastjóri í framkvæmdadeild
Yrkir eignir ehf.

Verkefna- og rekstrarfulltrúi
Rennsli ehf.

Sérfræðingur í framkvæmdareftirliti
EFLA hf

Verkefnastjórnun á byggingasviði
EFLA hf

Húsumsjón – húsvarsla hjá golfklúbbi
Golfklúbbur Klettar

Verkefnastjóri hönnunar
FSRE

A&R fulltrúi / Verkefnastjóri tónlistarútgáfu og markaðsmála
Vetur Music

Maintenance Worker – Full-Time / Minimum 6 Months
Hótel Dyrhólaey

Civil Society Fund Transnational Officer, Uppbyggingarsjóður EES
Financial Mechanism Office (FMO)