

Sumarstarfsmaður hjá Markaðsstofu höfuðborgarsvæðisins
Sumarstarfsmaður hjá Markaðsstofu höfuðborgarsvæðisins/Visit Reykjavík
Markaðsstofa höfuðborgarsvæðisins/Visit Reykjavík leitar að öflugum sumarstarfsmanni til að sinna verkefnum tengdum kortlagningu og þróun á útivistarvef fyrir höfuðborgarsvæðið utumallt.is. Á vefnum má finna gagnlegar upplýsingar um vinsæl útivistarsvæði, göngu- og hjólaleiðir. Leitað er eftir sumarstarfsmanni sem hefur m.a. áhuga á útivist til þess að afla og skrá frekari upplýsingar um útivistarmöguleika á höfuðborgarsvæðinu.
Auk þess mun starfsmaðurinn sinna almennri upplýsingagjöf um áfangastaðinn og öðrum tilfallandi verkefnum eins og við á.
Markaðsstofa höfuðborgarsvæðisins þróar og markaðssetur áfangastaðinn í heild. Áhersla er á að efla atvinnustarfsemi og auka gjaldeyristekjur með sjálfbærni að leiðarljósi.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Öflun upplýsinga um útivistarmöguleika á höfuðborgarsvæðinu
- Skráning upplýsinga í gagnagrunn útivistarvefs
- Aðstoð við svörun fyrirspurna um áfangastaðinn
- Önnur tilfallandi verkefni
Menntunar- og hæfniskröfur
Við leitum að starfsmanni í háskólanámi með
- Áhuga á þróun áfangastaða, útivist og ferðaþjónustu
- Sjálfstæð og nákvæm vinnubrögð
- Góða samskiptahæfni
- Góða íslensku og ensku kunnáttu
- Æskilegt er að starfsmaður sé í háskólanámi
Verkefnið er tilvalið fyrir háskólanemendur t.d. í ferðamálafræði, skipulagsfræði eða öðrum skyldum greinum.
Enska
Íslenska










