

Teymisstjóri skipulagsmála
Umhverfis- og skipulagssvið leitar að kraftmiklum einstaklingi til að leiða samráð, samskipti og upplýsingagjöf á stærstu skipulagsverkefnum borgarinnar. Ef þú ert lausnamiðaður og drífandi einstaklingur þá er þetta starf mögulega fyrir þig.
Deild skipulagmála veitir borgarbúum, borgarfulltrúum, ráðgjöfum, hönnuðum og verktökum upplýsingar og ráðgjöf um skipulagsmál. Auk þess vinnur deildin úr erindum sem berast skipulagsfulltrúa, annast grenndarkynningar og kynningarfundi, veitir umsagnir um leyfisumsóknir, annast samráð við opinbera umsagnaraðila, almenning og aðra hagaðila skv. ákvæðum laga og reglugerða.
Við leitum að lausnarmiðuðum einstaklingi með ríka samskiptahæfileika, frumkvæði og þjónustumiðaða hugsun, sem hefur áhuga á nýsköpun og vilja til að taka þátt í að styðja við skipulagsmál í Reykjavík. Starf teymisstjóra hefur snertifleti við fjölmarga aðila sem koma að spennandi uppbyggingu og skipulagi borgar.
Um er að ræða fjölbreytt og skemmtilegt starf í faglegu starfsumhverfi þar sem áhersla er á þverfaglega teymisvinnu, góða þjónustu og virðingu fyrir umhverfinu. Næsti yfirmaður er deildarstjóri skipulagsmála.
- Hefur forystu um faglega verkefnastjórnun og framþróun hennar í teyminu og styður verkefnastjóra eins og þörf er á.
- Yfirsýn framvindu og kostnaðaráætlana verkefna, eftirfylgni og upplýsingaflæði.
- Verkefnastjórnun skipulagsverkefna.
- Leiðandi hlutverk við mótun og framfylgd gæðamála og stefnu Reykjavíkurborgar í málaflokknum.
- Yfirsýn yfir verkstöðu og aðkeypta þjónustu vegna verkefna og samráð við deildarstjóra við gerð fjárhagsáætlana.
- Hefur umsjón með samningum í verkefnum teymisins, kostnaðaráætlunum, framvindureikningum og lokauppgjöri er heyra undir verkefni teymisins.
- Framhaldsmenntun í arkitektúr, landslagsarkitektúr, skipulagsfræði eða sambærilegum greinum á háskólastigi sem nýtast í starfi.
- A.m.k. fimm ára reynsla á starfssviðinu.
- Þekking og reynsla af skipulagsverkefnum á stjórnsýslustigi.
- Reynsla af verkefnastjórnun.
- Frumkvæði í starfi, framsýni, skipulagsfærni og góð yfirsýn yfir verk og verkþætti.
- Leiðtogahæfileikar, stefnufesta og lipurð í mannlegum samskiptum.
- Góð færni í textagerð og framsetningu gagna, sem og í framsögu og kynningum. Góð tæknikunnátta.
- Íslenskukunnátta C1-C2 í samræmi við í samevrópska tungumálarammann og enskukunnátta C1
Íslenska
Enska




