
Höfði hjúkrunar- og dvalarheimili
Höfði hjúkrunar- og dvalarheimili er stofnun í eigu Akraneskaupstaðar og Hvalfjarðarsveitar.
Á Höfða eru 73 íbúar í hjúkrunarrýmum , auk þess er tvö hvíldarými. Á heimilinu eru einstaklingsíbúðir, hjónaíbúðir og tvískiptar hjúkrunaríbúðir.
Í hinu sameiginlega rými hússins er m.a. eldhús, matsalur, samkomusalur, herbergi fyrir starfs- og sjúkraþjálfun, iðjuþjálfun, hárgreiðslu, fótsnyrtingu, þvottahús, endurhæfingarrými og skrifstofur. Þá er sérstakt rými fyrir dagdvöl þar sem eru 25 rými. Tvær lyftur eru í húsinu og neyðarkallkerfi úr öllum íbúðum og vistarverum. Ágætt útivistarsvæði er við Höfða; stór lóð með göngustígum og setbekkjum Útsýni frá Höfða er mjög fallegt hvert sem litið . Gott er að fara í gönguferðir á Sólmundarhöfða, niður á Langasand eða upp í skógræktarsvæði Akurnesinga. Fyrir utan dvalarheimlið stendur listaverkið „Grettistak“ eftir Magnús Tómasson.

Umsjónarmaður fasteigna
Hjúkrunar-og dvalarheimilið Höfði auglýsir laust til umsóknar 100% starf umsjónarmanns fasteigna.
Um er að ræða fjölbreytt og ábyrgðarmikið starf sem snýr að rekstri og viðhaldi fasteigna heimilisins.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Daglegt eftirlit með húsnæði og aðstöðu (innan- og utanhúss)
- Fyrirbyggjandi viðhald og minni háttar viðgerðir
- Umsjón með tækjabúnaði og grunnkerfum (t.d. loftræsting, brunakerfi, aðgangsstýringar, lyftur – í samstarfi við þjónustuaðila)
- Móttaka og úrvinnsla viðhalds- og bilanatilkynninga (skráning, forgangsröðun, eftirfylgni)
- Umsjón með þjónustusamningum og samskipti við verktaka/þjónustuaðila
- Umsjón með sorpmálum
- Utanumhald með umhirðu lóðar
- Viðhald tækja og búnaðar
- Úttekt á ástandi fasteigna og gerð viðhalds- og viðgerðaráætlunar
- Yfirumsjón með öryggis-og brunavörnum.
- Aðstoð við uppsetningu/tilfærslur á húsgögnum og búnaði eftir þörfum
- Tilfallandi afleysing í akstri með íbúa og einstaklinga í dagdvöl.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Iðnmenntun (húsasmíði, rafvirkjun, pípulagnir, málun)
- Reynsla af húsumsjón/viðhaldi fasteigna er æskileg
- Þekking á tæknikerfum fasteigna er æskileg.
- Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð.
- Framúrskarandi samskiptahæfni og þjónustulund.
- Góð almenn tölvukunnátta
- Reynsla af mati á ástandi og viðhaldsþörf fasteigna
- D1 meirapróf er kostur
Auglýsing birt6. mars 2026
Umsóknarfrestur22. mars 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
Staðsetning
Sólmundarhöfði 5, 300 Akranes
Starfstegund
Hæfni
HandlagniHreint sakavottorðMálningarvinnaMeirapróf D1ÖkuréttindiPípulagningarRafvirkjunSjálfstæð vinnubrögðSmíðar
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)

Vilt þú stuðla að vinnuvernd með skoðun vinnuvéla?
Vinnueftirlitið

Starfsmenn í framleiðslu og uppsetningar
Signa ehf

Verkstjóri óskast – fjölbreytt verkefni
Verkás Brunnar

Maintenance manager
Borealis Data Center ehf.

Smiður / starfsmaður í byggingarvinnu
Verkás Brunnar

Orkubú Vestfjarða - Patreksfjörður - Rafvirki
Orkubú Vestfjarða ohf

brafa leitar að rafvirkjum
brafa

Byggingarstarfsmaður í framleiðslu á forsteyptum einingum / Construction worker
Einingaverksmiðjan

Leggðu línuna til Rarik í sumar! Sumarstarf í framkvæmdaflokki á Blönduósi
Rarik ohf.

Sölumaður – Signa / Fást / Ásborg
Signa ehf

Rafvirki
Eykt ehf

Málari/umsjónarmaður fasteigna
Byggingafélag námsmanna