
Sölu og þjónustufulltrúi
Sölu- og þjónustufulltrúi – Leitum að einstaklingi í faglegt og öflugt teymi
Hringiðan óskar eftir áreiðanlegum, lausnamiðuðum og þjónustulunduðum einstaklingi með reynslu úr fjarskiptum, t.d. Internet-, farsíma- eða ljósleiðaraþjónustu.
Við erum eitt reynslumesta fjarskiptafyrirtæki landsins og þjónustum bæði einstaklinga og fyrirtæki með áherslu á persónulega þjónustu, gæði og hraða úrlausn mála.
Starfið hentar sérstaklega vel þeim sem hafa áður unnið:
- í þjónustuveri eða afgreiðslu hjá fjarskiptafyrirtæki
- við ljósleiðaraferla, tengingar eða uppsetningar
- í sölu eða ráðgjöf tengdri Internet- eða farsímaþjónustu
Starfið hefst með reynslutíma og getur þróast í langtímastarf fyrir réttan aðila.
Helstu verkefni
- Þjónusta og ráðgjöf til viðskiptavina Hringiðunnar í Internet-, farsíma- og fjarskiptaþjónustu
- Afgreiða pantanir, breytingar og uppsetningarbeiðnir
- Leita lausna í tæknilegum og þjónustutengdum málum í samvinnu við teymið
- Taka þátt í sölutengdum verkefnum og eftirfylgni
- Aðstoða eftir þörfum í tengslum við email, hýsingu, netlausnir og Microsoft-þjónustur
- Annað faglegt þjónustu- og sölustarf sem til fellur
Þú verður hluti af litlu og öflugu teymi þar sem hraðar ákvarðanir eru teknar og persónuleg fagmennska skiptir máli.
Hæfniskröfur
- Reynsla úr fjarskiptum, t.d. þjónustuveri, sölu eða afgreiðslu tengdri internet- eða farsímaþjónustu
- Þekking á ljósleiðaraferlum, uppsetningum, afgreiðslu beiðna eða sambærilegum verkefnum er mikill kostur
- Góð samskiptahæfni, faglegt viðmót og góð þjónustulund
- Góð tölvukunnátta og hæfni til að tileinka sér kerfi (t.d. MS CRM )
- Skipulagður vinnustíll, ábyrgð og áreiðanleiki
- Jákvæðni og vilji til að vinna sem hluti af samstilltu fjarskipta teymi
- Reyklaus er skilyrði
- Stundvísi og traust vinnubrögð
Við metum mjög til reynslu ef umsækjandi hefur áður starfað í þjónustu fyrir:
- Ljósleiðarann / Mílu
- Nova
- Vodafone
- Símann
- eða aðrar Internetþjónustur með sambærilega tækni- og þjónustuaðila
Vinnutími
- 100% starf
- Virkir dagar: 9.00 –17.00
- Annar hvern laugardag eða samkvæmt samkomulagi: 13–17
Fríðindi og starfskjör
- Internettenging frá Hringiðunni
- Farsími
- Starf í faglegu þjónustuveri með sérfræðingum í net- og fjarskiptum
- Sjálfstætt starf, þjálfun og tækifæri til að vaxa í starfi
- Tækifæri til að vinna í litlu, öflugu teymi þar sem þín reynsla skiptir máli
Af hverju Hringiðan?
- Öflug starfsemi í fjarskiptum síðan 1995
- Vinnuumhverfi sem hvetur til sjálfstæðra vinnu.
- Mikil fagþekking innan húss og sterkt teymi
- Möguleiki á að hafa áhrif á ferla, þjónustu og upplifun viðskiptavina
- Stuðningur í innleiðingu og þróun í starfi
- Aðstoða viðskiptavini við Internet- og símaþjónustu.
- Söluráðgjöf og afgreiða pantanir og breytingar á þjónustum
- Aðstoða við upplýsingatæknitengd mál tengd, email, hýsingu og Microsoft
(sé þekking til staðar, eða vilji til að læra) - Aðkoma að sölutengdum verkefnum
- Leysa ýmis önnur verkefni sem koma upp í starfinu.
- Reynsla af sölustörfum og aðstoð við internet-/símaþjónustu er mikill kostur.
Góð þekking á Microsoft CRM kemur sér vel, en vilji til að læra og skila góðu starfi er lykilatriði. Við hvetjum fólk sem hefur reynslu af öllum aldri til þess að sækja um.
- Heimatenging
- Farsími
Íslenska
Enska










