

Reykjavík - Sölufulltrúi, 30 ára og eldri
Papco hf auglýsir eftir metnaðarfullum og áhugasömum þjónustu- og sölufulltrúa á hreinlætisvörum.
Starfið felst í að þjónusta viðskiptavini og afla nýrra auk annarra tilfallandi starfa. Æskilegt er að viðkomandi hafi reynslu af sölumennsku, sé hraustur og ófeiminn við áskoranir.
Papco er rótgróið fyrirtæki sem þjónustar mjög fjölbreyttan hóp viðskiptavina um allt land, og býður upp á mikið vöruúrval, auk eigin framleiðslu á hreinlætispappír. Hjá Papco er lögð mikil áhersla á góða samvinnu starfsfólks og framúrskarandi þjónustu við viðskiptavini.
Fjölbreytt starf í lifandi umhverfi.
Vinnutími 08-16, en 08-15:15 á föstudögum.
Þarf að geta hafið störf sem fyrst.
Nánari upplýsingar gefur Þórður í síma 660-6700.
Sala og þjónusta ásamt öðrum tilfallandi störfum
- Reynsla af sölustörfum er skilyrði
- Góð hæfni í mannlegum samskiptum og rík þjónustulund
- Góð hæfni til að vinna sjálfstætt, og jafnframt í hóp
- Öguð vinnubrögð, metnaður og jákvæðni
- Að geta talað og skrifað bæði íslensku og ensku
Íslenska
Enska










