Dekra Innflutningur
Dekra Innflutningur

Viðskiptastjóri

Dekra Innflutningur leitar að metnaðarfullum og öflugum viðskiptastjóra með sterka þjónustulund.

Viðskiptastjóri veitir faglega ráðgjöf til viðskiptavina með það að markmiði að byggja upp jákvæða vörumerkjaímynd og efla framtíðarsamstarf við söluaðila og viðskiptavini. Við leitum að einstaklingi sem hefur ánægju af því að vinna með fólki og fylgjast með nýjungum í greininni.

Um er að ræða lifandi og skemmtilegt starf þar sem þú færð tækifæri til að vinna með vönduð vörumerki, heimsækja viðskiptavini, taka þátt í kynningum og leggja þitt af mörkum til að auka sölu og styrkja stöðu vörumerkja fyrirtækisins.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Sala og samskipti við viðskiptavini og söluaðila
  • Heimsóknir til viðskiptavina og uppbygging viðskiptasambanda
  • Umsjón með uppbyggingu og markaðssetningu vörumerkja
  • Kynningar á vörum og vörumerkjum í verslunum
  • Kennsla og þjálfun fyrir viðskiptavini og fagfólk
  • Ráðgjöf til viðskiptavina um vörur og notkun þeirra
  • Þátttaka í innleiðingu nýrra vörumerkja og vara
  • Önnur tilfallandi verkefni

Hæfniskröfur:

  • Menntun og/eða reynsla sem nýtist í starfi
  • Góð samskiptafærni
  • Mjög góð íslensku og ensku kunnátta
  • Frumkvæði, drifkraftur og sveigjanleiki
  • Sjálfstæð og öguð vinnubrögð
  • Skipulagshæfni
  • Góð tölvukunnátta
  • Þekking á samfélagsmiðum er kostur
  • Þekking á Photoshop og Canva er kostur

Til að geta sinnt hlutverki sínu fær viðskiptastjóri aðgang að bifreið á vegum vinnuveitanda á vinnutíma og þarf því að vera með gilt ökuskírteini.

Dekra Innflutningur er heildsala sem sérhæfir sig í að flytja inn vönduð vörumerki í heimi fegurðar. Við trúum á persónulega þjónustu, góð sambönd við viðskiptavini og ástríðu fyrir iðnaðinum. Ef þú hefur áhuga á hár- og snyrtivörum, elskar að fylgjast með nýjungum og vilt vinna á stað þar sem þú getur raunverulega haft áhrif og vaxið í starfi, þá gætir þú passað fullkomlega inn hjá okkur.

Umsóknarfrestur er til 23. mars 2026

Við hvetjum áhugasama til að sækja um, óháð kyni og uppruna.

Umsókn skal fylgja ferilskrá og ítarlegt kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur um hæfni viðkomandi til að gegna starfinu.

Umsjón með umsóknum hafa Unnur Ýr Konráðsdóttir ([email protected]) og Jensína Kristín Böðvarsdóttir ([email protected]) hjá Vinnvinn.

Auglýsing birt13. mars 2026
Umsóknarfrestur23. mars 2026
Tungumálahæfni
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Akralind 7, 201 Kópavogur
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar