Creditinfo
Creditinfo
Creditinfo

Söluráðgjafi - fyrirtækjalausnir Creditinfo

Ert þú drífandi sölumanneskja með reynslu af sölu til fyrirtækja?

Creditinfo leitar að metnaðarfullum einstaklingi með reynslu af sölu eða viðskiptum á fyrirtækjamarkaði til að ganga til liðs við öflugt teymi fyrirtækisins.

Starfið felst fyrst og fremst í að finna ný viðskiptatækifæri, byggja upp sambönd við fyrirtæki og selja gagnadrifnar lausnir Creditinfo. Við leitum að einstaklingi sem hefur frumkvæði, þrautseigju og brennandi áhuga á sölu og viðskiptum.

Reynsla af fyrirtækjamarkaði og/eða stafrænum lausnum er mikill kostur.

Hjá Creditinfo gefst tækifæri til að þróast í starfi og með tímanum taka að sér stærri viðskiptasambönd.

Helstu verkefni og ábyrgð

• Sala á lausnum og gögnum Creditinfo til fyrirtækja
• Finna og þróa ný viðskiptatækifæri
• Tilboðs- og samningagerð
• Uppbygging og viðhald viðskiptasambanda
• Samstarf við vöruteymi og þátttaka í þróun lausna
• Önnur tilfallandi verkefni

Menntunar- og hæfniskröfur

Háskólamenntun sem nýtist í starfi (krafa)
Reynsla af sölu eða þjónustu við fyrirtæki (krafa)
• Metnaður, frumkvæði og vilji til að ná árangri í sölu
• Framúrskarandi samskiptahæfni
• Reynsla af kynningum og samningaviðræðum
• Góð almenn tölvukunnátta
• Áhugi á gagnadrifnum lausnum og viðskiptaumhverfi fyrirtækja

Auglýsing birt10. mars 2026
Umsóknarfrestur24. mars 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Borgartún 25, 105 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.MetnaðurPathCreated with Sketch.SamningagerðPathCreated with Sketch.Sölumennska
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar