APRÓ
APRÓ
APRÓ

Sérfræðingur í þjónustu og upplifun

APRÓ leitar að lausnamiðuðum einstaklingi í starf sérfræðings í þjónustu og upplifun (e. Customer Success). Viðkomandi mun gegna lykilhlutverki í innleiðingu og þjónustu við APRÓ Vitann, nýrri gervigreindarlausn sem er í þróun hjá okkur.

Starfið heyrir undir gervigreindar- og gagnateymi APRÓ. Hlutverkið krefst ekki forritunarkunnáttu, heldur snýst það um að brúa bilið milli þróunarteymis og viðskiptavina svo þeir fái sem mest virði út úr lausninni. Þetta er kjörið tækifæri fyrir einstakling sem er að stíga sín fyrstu skref í tæknigeiranum, þar sem við bjóðum upp á frábært umhverfi til að læra og vaxa í starfi.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Vera lykiltengiliður við viðskiptavini og styðja þá við innleiðingu og notkun kerfisins
  • Greina þarfir notenda og ramma inn verkefni
  • Fylgjast með því hvernig varan er nýtt og greina tækifæri til umbóta
  • Byggja upp varanleg og traust viðskiptasambönd með framúrskarandi þjónustu
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Menntun eða reynsla sem nýtist í starfi
  • Framúrskarandi færni í mannlegum samskiptum, jákvæðni og rík þjónustulund
  • Góður tækniskilningur - reynsla úr tæknigeiranum eða sambærilegu starfi er kostur
  • Skipulögð vinnubrögð og færni til að fylgja málum eftir frá upphafi til enda
  • Mikill áhugi á tækni, nýsköpun og gervigreind
  • Framúrskarandi færni í íslensku og ensku
Fríðindi í starfi
  • Kaupréttaráætlun
  • Sveigjanlegur vinnutími
  • Árlegur heilsustyrkur
  • Samgöngustyrkur
  • Mötuneyti, drykkir og snarl á vinnustað
  • Starfsmannafélag og reglulegir viðburðir
Auglýsing birt11. mars 2026
Umsóknarfrestur22. mars 2026
Tungumálahæfni
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Urðarhvarf 8, 203 Kópavogur
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.SkipulagPathCreated with Sketch.Þjónustulund
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar