
Afgreiðslu og sölufulltrúi - Keflavík
Afgreiðslu og sölufulltrúi Camper Iceland.
Við leitum að söludrifnum og jákvæðum einstaklingi í krefjandi og skemmtilegt starf sölu- og afgreiðslufulltrúa fyrirtækisins í Keflavík. Um er að ræða 70-100% starf. Starfið felur í sér afgreiðslu á bílaleigubílum, sölu á viðbótarþjónustu, þjónustu við viðskiptavini á meðan á leigu stendur og móttöku bíla að lokinni leigu.
Ábyrgð og helstu verkefni:
• Sala á viðbótarþjónustu í framlínu
• Afhending og móttaka bílaleigubíla
• Gerð leigusamninga
• Samskipti við erlenda og innlenda viðskiptavini
• Sala til erlendra og innlendra viðskiptavina
• Önnur tilfallandi verkefni
Kröfur um menntun og hæfni:
• Brennandi áhugi fyrir sölu og góðri þjónustu
• Góð tölvuþekking
• Góð íslensku- og ensku kunnátta skilyrði, önnur tungumálakunnátta kostur
• Framúrskarandi færni í mannlegum samskiptum
• Hreint sakavottorð
• Bílpróf er skilyrði
Umsóknum skal skilað inn í formi ferilskrár og kynningarbréfs í gegnum Alfreð.
Öllum umsækjendum verður svarað og farið er með umsóknir sem trúnaðarmál.
Íslenska
Enska










