

Full-Stack forritari í menntatækni
Infomentor leitar að lausnamiðaðri og metnaðarfullri manneskju sem er reiðubúin taka þátt í þróun og viðhaldi hugbúnaðarlausna í menntatækni fyrir leik-, grunn- og framhaldsskóla um allt land. Markmið okkar er að auðvelda daglegt starf starfsfólks í skólum, nemenda og foreldra með lausnum sem sniðnar eru að þörfum hvers skólastigs, eins og kostur er, og taka þannig þátt í framþróun menntakerfisins.
Við vinnum í nánu samstarfi sem teymi og leggjum áherslu á gæði, einfaldleika og stöðugar umbætur á lausnum okkar.
Við leitum að einstakling með eftirfarandi eiginleika:
-
Góð samskiptahæfni, lausnamiðuð hugsun og skipulag í vinnubrögðum.
-
Frumkvæði, drifkraftur og jákvætt viðmót.
-
Vilji til að vinna bæði sjálfstætt og í teymi.
-
Vilji til að tileinka sér nýjustu tækni og lausnir.
-
Vilji til að þróast í starfi og miðla þekkingu.
-
Þróun, viðhald og rekstur hugbúnaðarlausna fyrir öll skólastig, ásamt lausnum tengdum frístund og símenntun.
-
Vinna að nýjungum í samstarfi við aðra sérfræðinga.
-
Veita annars stigs þjónustu og stuðning við núverandi kerfi.
-
Hönnunar- og greiningarvinna í samvinnu við teymið.
-
Vinna ýmist með teymi eða sjálfstætt, eftir þörfum verkefna.
-
Bæta og þróa ferla og vinnubrögð innan teymisins.
-
Menntun í tölvunarfræði, hugbúnaðarverkfræði eða skyldum greinum.
-
Reynsla af .NET / C#.
-
Reynsla af SQL (MSSQL, Oracle eða álíka).
-
Reynsla af smíði veflausna.
-
Reynsla af React, AngularJS eða Vue er kostur.
-
Reynsla af Java, Python, Typescript eða Javascript er kostur.
-
Sveigjanlegur vinnutími og möguleiki á fjarvinnu að hluta
-
Íþróttastyrkur
-
Símastyrkur
-
Greitt fyrir nettengingu og síma
-
Matur frá Maul ásamt aðgengi að léttmeti og drykkjum.
Íslenska
Enska










