
Forritari (e.developer)
Þjónustu- og nýsköpunarsvið leitar að reyndum forritara til starfa á skrifstofu gagna og hugbúnaðarþróunar. Við þróum áreiðanlegar, aðgengilegar og notendavænar stafrænar lausnir sem bæta þjónustu við íbúa og styðja við upplýsta ákvarðanatöku.
Þú vinnur í þverfaglegu teymi forritara, prófara, hönnuða og vörustjóra að þróun stafrænna lausna sem eru hluti af daglegri stafrænni þjónustu sem borgarbúar og starfsfólk nýta sér.
Sem leiðandi forritari gegnir þú lykilhlutverki í teyminu og kemur að tæknilegri hönnun og þróun hugbúnaðarlausna með áherslu á bakendakerfi og heildstæðan lausnaarkitektúr. Í starfinu tekur þú þátt í tæknilegum ákvörðunum, stuðlar að gæðum kóða og styður við faglega þróun teymisins.
- Leiða þróun og viðhald á hugbúnaðarlausnum með .NET Core og React/TypeScript
- Ábyrgð á kóðagæðum, endurskoðun kóða og stýringu tækniskulda
- Uppsetning, viðhald og hagræðing á SQL Server gagnagrunnum
- Nýting á Microsoft Azure til að tryggja skalanleika og áreiðanleika kerfa
- Þróun og viðhald á CI/CD ferlum með notkun GitHub Actions
- Samvinna við aðrar einingar innan þjónustu- og nýsköpunarsviðs, með notkun Jira Software og Agile/Scrum aðferða
- Þátttaka í mótun tæknilegrar stefnu og lausnahönnun í samstarfi við tæknistjóra gagna og hugbúnaðarþróunar
- Skjölun á lausnahönnun, arkitektúr og virkni kerfa
- Leiðsögn og faglegur stuðningur við aðra forritara
- Ráðgjöf og tæknilegur stuðningur við aðra sérfræðinga innan skrifstofunnar
- Háskólamenntun í tölvunarfræði eða sambærilegri menntun og/eða reynsla sem nýtist í starfi
- Reynsla af því að bera tæknilega ábyrgð á kerfum og/eða verkefnum
- Góð þekking á RESTful API hönnun og samþættingu kerfa
- Reynsla af skýjalausnum, sérstaklega Microsoft Azure
- Reynsla af CI/CD ferlum og sjálfvirknivæðingu þróunarferla
- Hæfni til að taka tæknilegar ákvarðanir og koma að lausnahönnun
- Frumkvæði og sjálfstæði í starfi
- Góðir samskipta- og leiðtogahæfileikar
- Rík aðlögunarhæfni og jákvætt viðhorf til breytinga
- Hæfni til að tjá sig í ræðu og riti á íslensku og ensku
Þjónustu- og nýsköpunarsvið er fyrsta flokks vinnustaður þar sem góð liðsheild og virðing einkennir menninguna. Við leggjum mikið upp úr faglegu umhverfi þar sem frumkvæði og þori er fagnað. Verkefnin eru krefjandi, skemmtileg og enn betra er að þau stuðla að því að einfalda og bæta líf borgarbúa og starfsfólks borgarinnar.
Þjónustu- og nýsköpunarsvið er regnbogavottaður vinnustaður. Markmið með regnbogavottun Reykjavíkurborgar er að gera starfsemi Reykjavíkurborgar hinseginvænni, bæði fyrir starfsfólk og þjónustuþega og einnig koma í veg fyrir beina og óbeina mismunun í garð hinsegin fólks.
Við bjóðum upp á
- Fyrsta flokks vinnustað
- Niðurgreitt mötuneyti sem býður upp á fjölbreyttan og hollan mat
- Verkefni sem stuðla að því að einfalda og bæta líf starfsfólks og borgarbúa
- Krefjandi og skemmtileg verkefni
- Öfluga nýliðamóttöku
- Sálrænt öryggi og skapandi menningu
- Góða liðsheild og góð samskipti
- Samkennd og virðing
- Þekkingarumhverfi
- Fjölbreytta þjálfun og möguleika á þróun í starfi
- Áherslu á jafnrétti og fjölbreytileika
- Heilsueflandi vinnustað
- Gott vinnuumhverfi
- 30 daga í sumarleyfi
- 36 stunda vinnuviku
- Fyrsta flokks vinnuaðstöðu
- Heilsu- og samgöngustyrk
- Sundkort
- Menningakort
Enska
Íslenska





