
Sjóvá
Sjóvá leitast við að vera eftirsóknarverður vinnustaður sem laðar að sér metnaðarfullt og hæft starfsfólk og skapar starfsmönnum tækifæri til að eflast og þróast í starfi.
Hjá okkur starfa um 200 manns, þar af um 170 í höfuðstöðvum okkar í Kringlunni 5 en Sjóvá er með útibú víðsvegar um landið. Meðalstarfsaldur er 10 ár og margir búa að langri og víðtækri starfsreynslu meðan aðrir eru að hefja sinn starfsferil með okkur.
Fyrirtækjamenning okkar einkennist af mikilli þjónustulund, fagmennsku og samheldni, í bland við keppnisskap og vináttu. Við leggjum áherslu á góð samskipti við viðskiptavini og hvert annað og höfum vegvísana okkar Við sýnum umhyggju, við byggjum á þekkingu, við erum kvik og við einföldum hlutina sem okkar leiðarljós í öllum samskiptum.

SAP forritari
Við leitum að SAP forritara til að ganga til liðs við öflugt SAP teymi hjá okkur. Ef þú hefur áhuga á að bæta og þróa viðskiptaferla með nútímatækni er þetta tækifæri fyrir þig.
Við tökum vel á móti bæði reynslumiklum sérfræðingum og þeim sem eru að stíga sín fyrstu skref í SAP. Það sem skiptir mestu máli er lausnamiðuð hugsun, frumkvæði og áhugi á stöðugri þróun.
Hjá okkur færðu tækifæri til að vinna með SAP lausnir framtíðarinnar, meðal annars FIORI, samþættingu kerfa, sjálfvirknivæðingu og gervigreind. Starfið er fjölbreytt og felur í sér náið samstarf við deildir þvert á fyrirtækið.
Helstu verkefni og ábyrgð
- hönnun, þróun og viðhald SAP lausna
- samþætting SAP við önnur kerfi
- þróun notendaviðmóta og sjálfvirkra ferla
Menntunar- og hæfniskröfur
- menntun í tölvunarfræði, verkfræði eða á sambærilegu sviði
- reynsla af eða áhugi á SAP forritun
- áhugi á viðskiptaferlum og hvernig tæknilausnir styðja við rekstur
- frumkvæði og vilji til að læra nýja hluti
Auglýsing birt27. febrúar 2026
Umsóknarfrestur15. mars 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
Staðsetning
Kringlan 5, 103 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
Hönnun ferlaNotendaviðmótSAP
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (1)
Sambærileg störf (12)

Verkefnastjóri- Gögn & Gervigreind
Fagkaup ehf

Software Developer | Embla Medical
Embla Medical | Össur

Sérfræðingur í Kerfisstjórnun
Veðurstofa Íslands

Sérfræðingur í rekstri upplýsingatæknikerfa
Míla hf

DevOps & Systems Engineer
atNorth

Leitum að kerfisstjóra í vef- og hýsingardeild
TACTICA

Ertu næsti UT meistarinn okkar ?
Terra hf.

Lead Game Designer
CCP Games

Hugbúnaðarsérfræðingur / Software Developer
Íslandsbanki

Senior Customer Solution Architect
PLAIO

Tæknilegur vörustjóri
Arion banki

NOC Specialist - Summer Position
Rapyd Europe hf.