
Íslandsbanki
Íslandsbanki er alhliða banki sem leggur áherslu á að koma til móts við þarfir viðskiptavina sinna og á sér langa sögu sem nær aftur til ársins 1875. Bankinn leggur áherslu á traustan rekstur og að hafa jákvæð áhrif í samfélaginu en hlutverk bankans er að vera hreyfiafl til góðra verka svo viðskiptavinir okkar nái árangri. Með framtíðarsýnina að vera #1 í þjónustu að leiðarljósi vinna þrjár viðskiptaeiningar þétt saman til þess að viðhalda góðum viðskiptasamböndum.
Hjá Íslandsbanka starfa um 750 manns sem hafa ástríðu fyrir árangri og vinna að lausnum fyrir viðskiptavini með fagmennsku að leiðarljósi. Við leggjum áherslu á að skapa virði til framtíðar með traustum rekstri og framúrskarandi þjónustu.

Sérfræðingur í Áhættustýringu
Íslandsbanki leitar að sérfræðingi í Áhættustýringu
Viltu taka þátt í að móta og efla Áhættustýringu í einu stærsta fjármálafyrirtæki landsins? Við leitum að metnaðarfullum einstaklingi til að ganga til liðs við deildina Rekstraráhætta og viðnámsþróttur innan Áhættustýringar Íslandsbanka.
Starfið felur í sér fjölbreytt verkefni á sviði áhættustýringar, sér í lagi sem snúa að eftirliti með rekstraráhættu. Viðkomandi fær tækifæri til þess taka þátt í þróun umgjarðar bankans um áhættustýringu og kemur að skýrslugjöf til stjórnenda, stjórnar og eftirlitsaðila. Í starfinu felst tækifæri til að taka þátt í mikilvægum verkefnum þvert á bankann.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Eftirfylgni, þróun, viðhald og innleiðing rekstrarsamfellumgjarðar og gæðamála
- Eftirlit með áhættumötum, atvikaskráningu og úttektaferlum
- Þróa og móta áhættumiðað og skilvirkt eftirlit með rekstraráhættu
- Innleiða og efla góða áhættumenningu innan bankans
- Fræðsla og ráðgjöf til starfsfólks og hagsmunaaðila
- Samskipti við eftirlitsaðila
- Sérhæfð greiningarverkefni og verkefnastýring
Menntunar- og hæfniskröfur
- Reynsla af áhættustýringu, innra eftirliti, öryggismálum eða gæðaeftirliti
- Þekking á rekstraráhættu og fjármálamarkaði er kostur
- Framhaldsmenntun á háskólastigi sem nýtist í starfi
- Frumkvæði, öguð vinnubrögð og framúrskarandi samskiptahæfileikar
- Tæknileg færni og hæfni til að miðla efni í ræðu og riti, bæði á íslensku og ensku
Auglýsing birt2. mars 2026
Umsóknarfrestur15. mars 2026
Tungumálahæfni
EnskaNauðsyn
ÍslenskaNauðsyn
Staðsetning
Hagasmári 3, 201 Kópavogur
Starfstegund
Hæfni
ÁkveðniAlmenn tæknikunnáttaÁreiðanleikiAðlögunarhæfniDrifkrafturFagmennskaFljót/ur að læraFrumkvæðiHeiðarleikiJákvæðniMannleg samskiptiMetnaðurNákvæmniSjálfstæð vinnubrögðSkipulagStundvísiSveigjanleikiTextagerðVandvirkniVinna undir álagiÞjónustulundÞolinmæði
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (1)
Sambærileg störf (12)

Full-Stack forritari í menntatækni
InfoMentor ehf

Verkfræðingur á sviði brúarhönnunar
Vegagerðin

Tæknilegur verkefnastjóri
Farice ehf

Cyber Security & IT Compliance Manager
atNorth

UPPLÝSINGATÆKNISTJÓRI
SÁÁ

Vélaverk- eða tæknifræðingur
First Water

Director Line Maintenance
Air Atlanta Icelandic

Gjaldkeri
Eignaumsjón hf

Kerfisstjóri - Geimfari 2.0
Atmos Cloud

Sérfræðingur í fjár- og áhættustýringu
Icelandair

Verkefnastjóri/-stýra framkvæmda
Landsnet hf.

Verkefnastjóri
Steypustöðin