SÁÁ
SÁÁ

UPPLÝSINGATÆKNISTJÓRI

Vilt þú leiða stafræna þróun sem styður klíníska þjónustu, eykur öryggi og einfaldar dagleg störf fagfólks?

SÁÁ leitar að framsýnum og lausnamiðuðum upplýsingatæknistjóra til að leiða stafræna vegferð félagsins.

Upplýsingatæknistjóri gegnir lykilhlutverki í innleiðingu nýs þjónustusamnings við Sjúkratryggingar Íslands (SÍ) og uppbyggingu öruggra, samræmdra og skilvirkra upplýsingakerfa sem styðja klíníska þjónustu, rekstur og gæðastarf.

Starfið felur í sér mikla samvinnu með stjórnendum, fagfólki og ytri samstarfsaðilum.

Upplýsingatæknistjóri er hluti af stjórnendateymi SÁÁ.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Mótun og innleiðing stafrænnar stefnu SÁÁ í takt við þarfir klínískrar þjónustu og reksturs
  • Innleiðing og þróun stafrænna lausna og upplýsingakerfa, m.a. rafrænnar sjúkraskrár, lyfjaskráningar og tengdra kerfa sem bæta notendaupplifun, draga úr handavinnu og styðja við klínískt álag
  • Rekstur stafrænna umbótaverkefna frá greiningu til innleiðingar og eftirfylgni
  • Tryggja að upplýsingakerfi uppfylli kröfur um persónuvernd, netöryggi og gæðastjórnun
  • Þróun og innleiðing mælaborða og rekstrarupplýsinga sem styðja gagnadrifna ákvarðanatöku og skýrslugerð
  • Samræming og skjölun ferla þannig að upplýsingar flæði örugglega og rétt milli kerfa, ásamt sjálfvirknivæðingu og einföldun ferla fyrir störf starfsfólk
  • Umsjón með daglegum rekstri upplýsingakerfa, búnaðar og notendaþjónustu
  • Samskipti við þjónustuaðila og birgja og umsjón með þjónustusamningum
  • Ábyrgð á fjárhagsáætlunum og kostnaðareftirliti á sviði upplýsingatækni
  • Önnur verkefni í samráði við stjórnendur
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi svo sem; upplýsingatækni, tölvunarfræði, verkfræði eða öðru sambærilegum greinum
  • Reynsla af innleiðingu upplýsingakerfa, stafrænum umbótum eða verkefnastjórnun í flóknu rekstrarumhverfi
  • Góð þekking á upplýsingaöryggi, persónuvernd og rekstri tæknilausna
  • Sterk leiðtogafærni og hæfni til að leiða breytingar og þróunarverkefni
  • Reynsla eða skilningur á heilbrigðisþjónustu og klínískum ferlum kostur
  • Góð yfirsýn, öguð og skipulögð vinnubrögð
  • Sjálfstæði, frumkvæði og lausnamiðuð hugsun
  • Rík færni til samskipta og samstarfs
  • Leiðtogahæfni og farsæl reynsla af þverfaglegri teymisvinnu
  • Góð íslensku- og enskukunnátta í rituðu og töluðu máli
Auglýsing birt9. mars 2026
Umsóknarfrestur7. apríl 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Efstaleiti 7, 103 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.Innleiðing ferlaPathCreated with Sketch.LeiðtogahæfniPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.Verkefnastjórnun í upplýsingatækni
Starfsgreinar
Starfsmerkingar