

Kerfisstjóri - Geimfari 2.0
Við hjá Atmos Cloud erum að leita að fjölhæfum Cloud Specialist, eða geimfara eins og við köllum slíkar hetjur, til að styrkja flugstjórnina okkar. Ef þú ert týpan sem brúar bilið á milli jarðar (on-prem) og skýjanna af öryggi, og færð hroll þegar þú þarft að gera sama hlutinn handvirkt tvisvar, þá ertu manneskjan sem við leitum að.
Sem Atmos geimfari verður þú hluti af teymi sem vinnur að skemmtilegum og krefjandi verkefnum í íslensku, útlensku og stundum hreinni geimlensku. Dagarnir þínir munu snúast um að hanna framtíðina í skýjunum en halda fótunum tryggilega á jörðinni þegar kemur að traustum rekstri.
Þitt hlutverk í geimskipinu:
-
Hönnun og rekstur: Þú smíðar og stýrir öruggu tæknilandslagi í Azure og Microsoft 365.
-
Brúarsmiður: Þú hefur þekkingu á on-prem umhverfi og sérð um að tengja það óaðfinnanlega við skýjalausnir (Hybrid Cloud).
-
Sjálfvirknivæðing: Þú lifir fyrir automation. Ef það er hægt að skrifa scriptu fyrir því, þá gerir þú það.
-
Eftirlit og viðbrögð: Þú tryggir að kerfi viðskiptavina séu stöðug, skalanleg og keyri eins og vel smurð eldflaug.
-
Ráðgjöf: Þú hjálpar viðskiptavinum okkar að lenda mjúklega í skýjunum.
Við höfum tölvuleikjahetjur, hlaupara, fjalla- og veghjólara, skíðamenn, fluguveiði-amature-a, ræktarunnendur, hestafólk, sundgarpa og kokka. Öll eigum við það sameiginlegt að vera hamingjusamt fjölskyldufólk sem hlakkar til að fá nýjan vin í hópinn.
-
Sveigjanlegur vinnutími.
-
Einstaklings- og hópa hvatakerfi.
-
Heima internet og farsími.
-
Frábær vinnuaðstaða í Ármúlanum með kaffi, drinks og snacks í úrvalsflokki.
-
Niðurgreiddur hádegismatur.
-
Skýja-sérfræðingur: Víðtæk reynsla af Microsoft Azure og M365 (5+ ár).
-
Jarðtenging: Góð þekking á on-prem innviðum (Windows Server, Networking, Virtualization).
-
Automation-snillingur: Þekking á verkfærum eins og PowerShell, Terraform eða öðrum sjálfvirknilausnum er mikill kostur
-
Drifkraftur: Þú hefur tæknilega sýn, frumkvæði og vilt stöðugt verða betri í dag en þú varst í gær.
-
Samskipti: Þú getur útskýrt flókna tækni á mannamáli án þess að missa fólk út í geim.
-
Jákvæðni: Brosið er sá gjaldmiðill sem hvergi fellur í verði. Við leitum að manneskju sem mætir til leiks með góða lund (og kanski eina eða tvær góðar pælingar um skýjalausnir).
-
Bílpróf og bíll: Það hjálpar til við lendingar.
- Önnur menntun: Allt sem nýtist á jörðu sem og í geimnum
Við elskum skýjalausnir, til tunglsins og til baka. Atmos Cloud er ört vaxandi fyrirtæki þar sem traust og áreiðanleiki eru í fyrirrúmi. Við erum geimfarar, ekki geimverur – hjá okkur hafa allir rödd og við leggjum mikið upp úr léttleika og góðri þjónustu.
Enska
Íslenska










