
Egill Árnason ehf
Íslendingar gera miklar kröfur til híbýla sinna og því hefur Egill Árnason ehf ávallt lagt kapp á að vera með vandaða vöru og bestu fáanlegu merkin í hverjum vöruflokki fyrir sig. Auk þess er sérstaklega mikið lagt upp úr þjónustulund og segir tryggð dyggra viðskiptavina til margra ára meira en mörg orð um slíkt.
.
Söluráðgjafi
Egill Árnason ehf. er rótgróið fyrirtæki sem sérhæfir sig í sölu og ráðgjöf á gólfefnum, byggingavörum og tengdum lausnum fyrir einstaklinga sem og fagfólk.
Við leitum af metnaðarfullum einstaklingi til að starfa sem ráðgjafi í okkar öfluga teymi.
Starfið snýst fyrst og fremst um að veita faglega ráðgjöf og þjónustu til viðskiptavina sem leita af gólfefnum og tengdum vörum. Við leggjum mikla áherslu á þekkingu á vörunum sem við bjóðum, góð samskipti og fagleg vinnubrögð.
Við erum ekki hefðbundnir "sölumenn". Hlutverk okkar er að skilja þarfir viðskiptavina, miðla réttri þekkingu og hjálpa fólki að velja réttu lausnina fyrir sitt verkefni.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Kynna sér vel vörur og lausnir sem fyrirtækið býður upp á og byggja upp góða þekkingu á þeim
- Taka á móti viðskiptavinum og leiðbeina þeim í verslun með faglegri ráðgjöf
- Veita upplýsingar um vörur, lausnir og svara spurningum viðskiptavina
- Gera tilboð, upplýsa um birgðastöðu og aðstoða við val á réttum vörum
- Panta vörur eftir þörfum og fylgja vel eftir pöntunum
- Halda utan um samskipti við viðskiptavini og tryggja góða eftirfylgni
- Aðstoða við önnur verkefni eftir þörfum, m.a. á lager eða í öðrum þáttum rekstrar
- Sjá um hreinlæti, skipulag og almenna umhirðu verslunarinnar
- Taka þátt í tiltekt, uppsetningu og endurskipulagningu þegar þess þarf
Menntunar- og hæfniskröfur
- Góð samskiptahæfni og þjónustulund
- Metnaður til að tileinka sér þekkingu á vörum og lausnum
- Skipulögð vinnubrögð og ábyrgð
- Reynsla af þjónustu eða ráðgjöf er kostur
- Reynsla af verkefnastjórnun er kostur
Fríðindi í starfi
Kjör og hlunnindi eru samkvæmt samkomulagi og rædd nánar í ráðningarferlinu.
Auglýsing birt16. mars 2026
UmsóknarfresturEnginn
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
Staðsetning
Suðurlandsbraut 20, 108 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
ÁreiðanleikiAðlögunarhæfniFljót/ur að læraFrumkvæðiHreint sakavottorðJákvæðniMannleg samskiptiMetnaðurÖkuréttindiReyklausSamskipti með tölvupóstiSjálfstæð vinnubrögðSnyrtimennskaStundvísiVinna undir álagiÞjónustulund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)

Reykjavík - Sölufulltrúi, 30 ára og eldri
Papco

Sölufulltrúi í sumar
Myllan

Sales & Marketing Manager – Kombucha Iceland
Kúbalúbra ehf.

Hefur þú ástríðu fyrir skóm?
S4S - Kaupfélagið

Sölumaður heildsölusviðs
Lífland ehf.

Viðskiptastjóri
Dekra Innflutningur

Sölustarf í persónu (Face to face)
Takk ehf

Söluráðgjafi - fyrirtækjalausnir Creditinfo
Creditinfo

Sales & Travel Agent – Downtown Reykjavík Office
Travelshift

Hefur þú áhuga á fluguveiði?
Veiðiflugur

Sölufulltrúar hjá Símanum
Síminn

Afgreiðsla í verslun og samfélagsmiðlar.
Allt í köku ehf.