Garðabær
Garðabær
Garðabær

Heilsuleikskólinn Holtakot auglýsir eftir einstaklingi til að sinna stöðu snemmtækrar íhlutunar

Heilsuleikskólinn Holtakot auglýsir eftir starfsmanni í 100% starfshlutfall til að sinna stöðu snemmtækrar íhlutunar í samráði við leikskólastjóra og sérkennslustjóra.

Leikskólinn er fjögurra deilda leikskóli þar sem lögð er áhersla á hreyfingu, listsköpun og hollt matarræði.

Skólinn er Grænfánaskóli og starfar eftir "Uppeldi til ábyrgðar".

Einkunnarorð skólans eru: Jákvæðni, virðing og öryggi. Áhersla er lögð á metnaðarfullt starf.

Stefna leikskólans í starfsmannahaldi er að í skólanum starfi uppeldismenntaðir starfsmenn af báðum kynjum. Heimasíða leikskólans http://www.holtakot.is/

Leikskólar reknir af Garðabæ hafa til úthlutunar sérverkefnasjóð þar sem metnaðarfullir starfsmenn hafa tækifæri til að auka við laun sín.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Vinna að uppeldi og menntun barna í samvinnu við sérkennslustjóra og deildarstjóra
  • Vinna að faglegu starfi deilda
  • Taka þátt í foreldrasamvinnu
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Leyfisbréf til kennslu *(leyfisbréf fylgi umsókn), önnur uppeldisfræðimenntun, þroskaþjálfamenntun eða önnur menntun sem nýtist í starfi
  • Að lágmarki 90 námseiningar á einu námssviði aðalnámskrár og menntunarfræði leikskóla
  • Reynsla af starfi í leikskóla eða starfi með börnum er æskileg
  • Ánægja af því að starfa með börnum
  • Áhugi á heilsueflandi leikskólastarfi og hreyfingu
  • Frumkvæði, samskiptahæfni og sjálfstæði í vinnu
  • Sjálfstæði og skipulögð vinnubrögð
  • Íslenskukunnátta á stigi B2 samkvæmt evrópska tungumálarammanum
Fríðindi í starfi
  • Full stytting eða einn frídagur í mánuði og hluti af styttingu safnað í frídaga (sem teknir eru utan sumarorlofstímabils)
  • Leikskólinn er lokaður í dymbilviku og 2. janúar vegna styttingar starfsfólks
  • Opnunartími leikskólans er 7:30-16:30 mánud.- fimmtud. og 7:30-16:00 á föstudögum
  • Fimm skipulagsdagar á ári
  • 25% stöðugildi á hverri deild vegna snemmtækrar íhlutunar
  • Starfsmannaafsláttur er af leikskólagjöldum og forgangur inn í leikskóla fyrir börn starfsmanna
  • Eftir þrjá mánuði í starfi getur starfsfólk fengið frítt árskort í sundlaugar bæjarins
  • Eftir þrjá mánuði í starfi getur starfsfólk fengið frítt bókasafnskort í Bókasafn Garðabæjar ásamt fríu menningarkorti í Hönnunarsafn Íslands
  • Eftir sex mánuði í starfi getur starfsfólk fengið heilsuræktarstyrk
Auglýsing birt9. mars 2026
Umsóknarfrestur23. mars 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
Staðsetning
Breiðumýri, 225 Breiðumýri
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.JákvæðniPathCreated with Sketch.SamviskusemiPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögð
Vinnuumhverfi
Hentugt fyrir
Starfsgreinar
Starfsmerkingar