Akureyri
Akureyri
Akureyri

Leikskólinn Hagasteinn: Aðstoðarskólastjóri, nýr skóli

Staða aðstoðarskólastjóra leikskólans Hagasteins við Naustagötu 6 á Akureyri er laus til umsóknar. Um 100% ótímabundna stöðu er að ræða. Ráðið verður í stöðuna frá og með 1. júní 2026 eða samkvæmt samkomulagi.

Við leitum að framsýnum og metnaðarfullum aðstoðarskólastjóra sem er reiðubúinn til þátttöku í að byggja upp nýjan leikskóla frá grunni. Skólinn opnar í tveimur áföngum. Í fyrri áfanga er áætlað að opna fjórar deildir í ágúst 2026 og í seinni áfanga verða fjórar deildir opnaðar, áætlað í apríl 2027. Lögð verður áhersla á hlýtt, öruggt og skapandi lærdómssamfélag þar sem velferð barna og starfsfólks er í fyrirrúmi.

Starfssvið og áherslur:

Aðstoðarleikskólastjóri starfar samkvæmt lögum og reglugerð um leikskóla, öðrum lögum er við eiga, aðalnámskrá leikskóla, kjarasamningum, mannauðs- og menntastefnu Akureyrarbæjar sem og Réttindaskóla UNICEF, þar sem mannréttindi barna eru leiðarljós í öllu starfi.

Í samstarfi við nýráðinn skólastjóra fer fram sameiginleg mótun faglegra áherslna, uppeldisstefnu og innra starfs.

Næsti yfirmaður aðstoðarskólastjóra er skólastjóri.

Við leggjum áherslu á heilnæmt og barnvænt umhverfi, þar sem líkamleg og andleg vellíðan er undirstaða leikskólastarfsins. Í innra og ytra umhverfi skólans verður hugað að:

  • Lestrar- og málörvun: Lögð er áhersla á málþroska og læsi með læsishvetjandi umhverfi á fjölbreyttan hátt.
  • Skapandi og sjálfsprottnum leik: Leik- og efniviður er valinn með það í huga að hvetja börn til sjálfstæðrar sköpunar, ímyndunar og lausnaleitar.
  • Eiturefnalausu umhverfi: Áhersla lögð á vandaðan efnivið í húsgögnum, leikföngum, borðbúnaði og námsgögnum, þannig að umhverfið sé öruggt og heilnæmt eins og kostur er.
  • Náttúrunni: Náttúran verður nýtt markvisst sem hluti af leik og námi og umhverfismennt fái ríkan sess í daglegu starfi.
  • Hreyfingu og næringu: Börn fá fjölbreytt tækifæri til hreyfingar og góð næring er hluti af daglegu starfi.
  • Virðingu fyrir umhverfi: Flokkun og umhverfisvitund eru hluti af leik og starfi.
  • Heilbrigði og öryggi: Öryggi, vellíðan og heilbrigði allra í skólasamfélaginu eru ávallt í forgrunni.
  • Náttúrulegu litavali og rólegu umhverfi: Róandi og fallegt umhverfi styður einbeitingu, leik og skapandi hugsun.
Helstu verkefni og ábyrgð
  • Vinnur náið með skólastjóra og ber ásamt honum ábyrgð á skipulagningu, rekstri, starfsmannamálum og faglegu starfi skólans.
  • Er staðgengill í fjarveru skólastjóra og starfar þá samkvæmt starfslýsingu hans.
  • Vinnur að uppeldi og menntun nemenda og starfar að hluta til inni á deildum.
  • Vinnur í nánu samstarfi við foreldra/forráðamenn nemenda.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Kennaramenntun og leyfi til að nota starfsheitið kennari.
  • Grunnnám í leikskólafræðum er kostur.
  • Viðbótarmenntun á sviði menntunarfræða og/eða stjórnunar er kostur.
  • Reynsla af stjórnun og leikskólastarfi er æskileg.
  • Reynsla og áhugi af faglegri forystu og leiðsögn á sviði kennslu og þróunar í skólastarfi.
  • Farsæl reynsla af mannauðsmálum kostur og færni til eflingar mannauðs.
  • Jákvæðni og sjálfstæði.
  • Samstarfsvilji og framúrskarandi hæfni og lipurð í samskiptum.
  • Góð íslenskukunnátta og færni til að tjá sig í ræðu og riti.
  • Góð enskukunnátta.
  • Góð tölvukunnátta er nauðsynleg.
  • Gerð er krafa um vammleysi, s.s. að vera með gott orðspor og að framkoma og athafnir á vinnustað og utan hans samrýmist starfinu.
Auglýsing birt6. mars 2026
Umsóknarfrestur19. mars 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Naustagata 6
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.JákvæðniPathCreated with Sketch.MannauðsstjórnunPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.Sveigjanleiki
Starfsgreinar
Starfsmerkingar