

Glerárskóli: Sérkennari
Við Glerárskóla er laus til umsóknar 100% staða sérkennara. Starfið er tímabundið skólaárið 2026-2027 og er ráðið í stöðuna frá 1. ágúst 2026.
Í Glerárskóla eru um 300 nemendur og um 65-70 starfsmenn. Einkunnarorð skólans eru HUGUR-HÖND-HEILBRIGÐI og vinnur skólinn samkvæmt hugmyndafræði jákvæðs aga og Olweusar. Skólinn er Grænfánaskóli og stundar grenndarkennslu auk þess að leggja áherslu á læsi, leiðsagnarnám, góða stoðþjónustu, verkgreinar og teymisvinnu. Glerárskóli leitast við að undirbúa nemendur undir líf og starf með því að aðstoða þá við að finna og efla hæfileika sína, taka ábyrgð á eigin námi og gjörðum og efla andlegt og líkamlegt heilbrigði.
Viltu vita meira? Kíktu í rafræna heimsókn www.glerarskoli.is
Leitað er að hugmyndaríkum og metnaðarfullum einstaklingi sem hefur sýnt árangur í störfum sínum, á auðvelt með að sýna sveigjanleika, hafa frumkvæði, á auðvelt með öll samskipti og sem leggur áherslu á vellíðan og árangur nemenda í samstarfi við annað starfsfólk, stjórnendur skólans og forráðamenn.
- Er hluti af stoðteymi skólans ásamt sérkennurum, iðjuþjálfa, námsráðgjafa og ÍSAT kennara.
- Sinnir sérkennslu nemenda sem þurfa sértæka aðstoð í námi og tekur þátt í lausnaleit og vinnu hvað varðar þátttöku þeirra í daglegu skólastarfi.
- Aðstoðar umsjónarkennara við gerð einstaklingsmiðaðra náms- og stundaskráa.
- Veitir kennurum, nemendum og foreldrum ráðgjöf varðandi nám, kennslu og námsgögn.
- Útbýr kennslugögn og aflar nýrra í samræmi við þarfir einstakra nemanda.
- Er teymisstjóri í nemendamálum.
- Er þátttakandi í markvissri nýbreytni og þróunarstarfi stoðþjónustu skólans.
- Starfar undir leiðsögn verkefnastjóra stoðþjónustu.
- Starfar undir stjórn deildarstjóra og skólastjóra skólans.
- Kennaramenntun og réttindi til kennslu í grunnskóla.
- Framhaldsnám á sviði sérkennslu er æskilegt.
- Réttindanám í LOGOS er æskilegt.
- Hefur á valdi sínu fjölbreyttar kennsluaðferðir sem taka mið af mismunandi þörfum, áhuga og getu nemenda.
- Góð þekking á kennslu og uppeldisfræðum.
- Áhugi og metnaður til að vinna með stoðþjónustuteymi skólans og fylgja sýn hans og stefnu.
- Frumkvæði og samstarfsvilji.
- Sveigjanleiki og víðsýni í starfi og samskiptum.
- Góðir skipulagshæfileikar.
- Hæfni í mannlegum samskiptum.
- Reglusemi og samviskusemi.
- Góð íslenskukunnátta í ræðu og riti.
- Gerð er krafa um vammleysi, s.s. að vera með gott orðspor og að framkoma og athafnir á vinnustað og utan hans samrýmist starfinu.
Íslenska
















