

Þroskaþjálfi / kennari í sérdeild fyrir nemendur með einhverfu frá 1. ágúst 2026
Í skemmtilegan og fjölbreyttan starfsmannahóp vantar okkur þroskaþjálfa eða kennara í sérdeild skólans fyrir nemendur á einhverfurófi. Ráðning er til eins árs (fæðingarorlof) með möguleika á framtíðarstarfi. Í Fellaskóla er lögð áhersla á teymisvinnu og við hvetjum til fjölbreyttra vinnubragða.
Í sérdeild Fellaskóla fyrir nemendur með einhverfu eru 15 nemendur í 1. - 10. bekk. Við leggjum áherslu á einstaklingsmiðað nám en jafnframt að nemendur séu eins mikið þátttakendur í bekkjarstarfi og mögulegt er. Í deildinni starfar hópur fagfólks og stuðningsfulltrúa í góðu samstarfi við annað starfsfólk skólans.
Í Fellaskóla er fjölbreyttur og hæfileikaríkur nemendahópur. Flestir nemendanna tala fleiri en eitt tungumál og tengjast fjölmörgum löndum og menningarsvæðum. Með nemendum starfar öflugur hópur starfsfólks. Skólastarfið einkennist af jákvæðum skólabrag ásamt samvinnu kennara sem miðar að því að koma til móts við ólíkar þarfir nemenda, styrkja samskipti innan nemendahópsins og skapa metnaðarfullt námsumhverfi án aðgreiningar þar sem nemendur geta látið drauma sína rætast. Við höfum undanfarið unnið að ýmsum verkefnum til að bæta kennslu og aðra þjónustu við nemendur. Megináhersla er á málþroska og læsi, leiðsagnarnám og teymisvinnu kennara, ásamt tónlist og skapandi skólastarfi. Í skólanum starfa þrír deildarstjórar verkefna sem styðja við þessa þætti.
Fellaskóli er skóli án aðgreiningar og meginstefnan er að sérkennsla og ÍSAT kennsla fari fram í bekkjarumhverfi. Mikil áhersla er á læsi í yngstu árgöngunum og við vinnum náið með leikskólum hverfisins til að efla málþroska nemenda. Í Fellaskóla starfar talmeinafræðingur.
Fellaskóli er símalaus skóli, sem þýðir að nemendur nota ekki síma á skólatíma. Við bjóðum upp á skemmtilegt starfsumhverfi, flottan starfsmannahóp og rík tækifæri til að þróast í starfi.
- Annast kennslu og þjálfun nemenda í sérdeild.
- Vinnur einstaklingsáætlanir í samstarfi við fagfólk sérdeildar og aðra kennara.
- Tekur þátt í samstarfi sérdeildar og annarra aðila í skólanum.
- Á í samstarfi við foreldra, fagaðila og aðra ráðgjafa.
- Vinnur að þróun skólastarfs með stjórnendum og starfsfólki.
- Stuðla að farsæld nemenda í samstarfi við foreldra og annað fagfólk.
- Þroskaþjálfamenntun, kennaramenntun eða önnur menntun sem nýtist í starfi.
- Áhugi á að starfa með börnum.
- Hæfni í mannlegum samskiptum.
- Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð.
- Faglegur metnaður.
- Áhugi á að starfa í skapandi og metnaðarfullu umhverfi.
- Reynsla af teymisvinnu og vinnu með nememdum með sérþarfir er kostur.
- Mjög góð íslenskukunnátta.
Íslenska










