Fellaskóli
Fellaskóli
Fellaskóli

Kennari í dönsku og smiðjum frá 1. ágúst 2026

Fellaskóli leitar að kennara í dönsku á eldra stigi ásamt kennslu í leiklist / tónlist í smiðjum á yngra stigi. Um framtíðarstarf er að ræða.

Í Fellaskóla er fjölbreyttur og hæfileikaríkur nemendahópur. Flestir nemendanna tala fleiri en eitt tungumál og tengjast fjölmörgum löndum og menningarsvæðum. Með nemendum starfar öflugur hópur starfsfólks. Skólastarfið einkennist af jákvæðum skólabrag, mikilli samvinnu kennara sem miðar að því að koma til móts við ólíkar þarfir nemenda, styrkja samskipti innan nemendahópsins og skapa metnaðarfullt námsumhverfi án aðgreiningar þar sem nemendur geta látið drauma sína rætast.

Við höfum undanfarið unnið að ýmsum verkefnum til að bæta kennslu og aðra þjónustu við nemendur. Megináhersla er á málþroska og læsi, leiðsagnarnám og teymisvinnu kennara, ásamt tónlist og skapandi skólastarfi. Í skólanum starfa þrír verkefnisstjórar sem styðja við þessa þætti.

Fellaskóli er skóli án aðgreiningar og meginstefnan er að sérkennsla og ÍSAT kennsla fari fram í bekkjarumhverfi. Mikil áhersla er á læsi í yngstu árgöngunum og við vinnum náið með leikskólum hverfisins til að efla málþroska nemenda. Í Fellaskóla starfar talmeinafræðingur. Fellaskóli er símalaus skóli, sem þýðir að nemendur nota ekki síma á skólatíma. Við bjóðum upp á skemmtilegt starfsumhverfi, flottan starfsmannahóp og rík tækifæri til að þróast í starfi.

Allir kennarar í Fellaskóla líta á sig sem íslenskukennara og við viljum að stoðþjónusta fari sem mest fram inni í bekk.

Við leggjum mikla áherslu á tónlist og aðrar greinar sem stuðla að skapandi skólastarfi og leitum að kennara til að kenna í smiðjum. Í skólanum er starfandi teymi list- og verkgreinakennara.

Staðan skipist nokkurn veginn í tvennt, danska og smiðjukennsla.

Fellaskóli er símalaus skóli, sem þýðir að nemendur nota ekki síma á skólatíma.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Annast kennslu nemenda í samstarfi við teymi kennara.
  • Vinna að þróun skólastarfs með stjórnendum og samstarfsfólki.
  • Stuðla að farsæld nemenda í samstarfi við foreldra og annað fagfólk.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Kennaramenntun og / eða önnur menntun sem nýtist í starfi. 
  • Áhugi á að starfa með börnum.
  • Hæfni í mannlegum samskiptum.
  • Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð.
  • Faglegur metnaður.
  • Áhugi á að starfa í skapandi og metnaðarfullu umhverfi.
  • Reynsla af teymisvinnu er kostur.
  • Mjög góð íslenskukunnátta.
Auglýsing birt7. mars 2026
Umsóknarfrestur22. mars 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
Staðsetning
Norðurfell 17-19 17R, 111 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.SamviskusemiPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögð
Starfsgreinar
Starfsmerkingar