

ÍSAT kennari frá 1. ágúst 2026 eða fyrr
Nú vantar okkur ÍSAT kennara í hópinn (íslenska sem annað mál). Í Fellaskóla eru margir nemendur sem eru að stíga fyrstu skrefin í íslensku. Kennarar í íslensku sem annað mál mynda öflugt fagteymi sem ber ábyrgð á skipulagi og framkvæmd kennslunnar. Ýmist er kennt í íslenskunámsveri eða inni í bekk og áhersla er lögð á samstarf við umsjónarkennara. ÍSAT kennarar taka þátt í faglegu samstarfi ÍSAT kennara í Breiðholti.
Í Fellaskóla er fjölbreyttur og hæfileikaríkur nemendahópur. Flestir nemendanna tala fleiri en eitt tungumál og tengjast fjölmörgum löndum og menningarsvæðum. Með nemendum starfar öflugur hópur starfsfólks. Skólastarfið einkennist af jákvæðum skólabrag ásamt samvinnu kennara sem miðar að því að koma til móts við ólíkar þarfir nemenda, styrkja samskipti innan nemendahópsins og skapa metnaðarfullt námsumhverfi án aðgreiningar þar sem nemendur geta látið drauma sína rætast.
Við höfum undanfarið unnið að ýmsum verkefnum til að bæta kennslu og aðra þjónustu við nemendur. Megináhersla er á málþroska og læsi, leiðsagnarnám og teymisvinnu kennara, ásamt tónlist og skapandi skólastarfi. Í skólanum starfa þrír deildarstjórar verkefna sem styðja við þessa þætti. Fellaskóli er skóli án aðgreiningar og meginstefnan er að sérkennsla og ÍSAT kennsla fari fram í bekkjarumhverfi. Mikil áhersla er á læsi í yngstu árgöngunum og við vinnum náið með leikskólum hverfisins til að efla málþroska nemenda.
Í Fellaskóla starfar talmeinafræðingur.
Fellaskóli er símalaus skóli, sem þýðir að nemendur nota ekki síma á skólatíma.
Við bjóðum upp á skemmtilegt starfsumhverfi, flottan starfsmannahóp og rík tækifæri til að þróast í starfi. Möguleiki er að hefja störf nú þegar.
- Annast kennslu nemenda sem eru að byrja að læra íslensku.
- Samstarf og skipulag kennslu í samvinnu ÍSAT kennara.
- Vinna að þróun skólastarfs með stjórnendum og samstarfsfólki.
- Stuðla að farsæld nemenda í samstarfi við foreldra og annað fagfólk.
- Leyfi til að nota starfsheitið grunnskólakennari.
- Áhugi á að starfa með börnum.
- Hæfni í mannlegum samskiptum.
- Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð.
- Faglegur metnaður.
- Áhugi á að starfa í skapandi og metnaðarfullu umhverfi.
- Reynsla af teymisvinnu er kostur.
- Mjög góð íslenskukunnátta.
Íslenska
Enska










