Garðabær
Garðabær
Garðabær

Sjálandsskóli óskar eftir umsjónarkennara á yngsta stig

Sjálandsskóli óskar eftir að ráða umsjónarkennara á yngsta stig í fullt starf frá 1. ágúst 2026.

Sjálandsskóli er heildstæður grunnskóli fyrir nemendur í 1.-10. bekk og er staðsettur í Garðabæ. Í skólanum eru rúmlega 280 nemendur. Í Sjálandsskóla ríkir góður starfsandi þar sem allir starfsmenn vinna saman að því að byggja upp fjölbreytt og skapandi skólastarf með áherslu á útinám. Aðstaða starfsfólks og nemenda er til fyrirmyndar. Leitað er eftir einstaklingi sem hefur áhuga á að starfa í umhverfi sem leggur áherslu á sveigjanlegt skólastarf samkvæmt skólastefnu Sjálandsskóla og menntastefnu Garðabæjar.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Skipulag náms og kennslu nemenda á yngsta stigi
  • Sinnir kennslu og hefur umsjón með nemendum
  • Vinnur að skólaþróun með stjórnendum og samstarfsfólki
  • Stuðlar að velferð nemenda og samstarfi við foreldra og annað fagfólk
  • Teymisvinna
  • Foreldrasamskipti og samvinna heimilis og skóla
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Kennaramenntun og leyfisbréf til kennslu* (leyfisbréf fylgi umsókn)
  • Að lágmarki 90 námseiningar á einu námssviði aðalnámskrár og menntunarfræði grunnskóla
  • Íslenskukunnátta á stigi C1 skv. evrópska tungumálarammanum
  • Lipurð og færni í mannlegum samskiptum ásamt metnaði í starfi
  • Faglegur metnaður
  • Frumkvæði, skipulagshæfni, sjálfstæði í vinnubrögðum, stundvísi og samviskusemi
  • Áhugi á skólaþróun
  • Góð tölvukunnátta
  • Reynsla af starfi í grunnskóla og/eða starfi með börnum er æskileg

*Fáist ekki starfsmaður með leyfisbréf til kennslu kemur til greina að ráða háskólamenntaðan einstakling tímabundið til starfa sbr. lög nr. 95/2019.

Fríðindi í starfi
  • Frítt árskort í sundlaugar bæjarins, bókasafnskort og menningarkort í Hönnunarsafn Íslands eftir þrjá mánuði í starfi.
  • Styrkur til hreyfingar eftir sex mánuði í starfi.
  • Starfsfólk í skólum Garðabæjar möguleika á að sækja um styrki í Þróunarsjóði leik- og grunnskóla Garðabæjar og er þeim ætlað að stuðla að nýbreytni og framþróun í starfi skóla bæjarins.
Auglýsing birt19. mars 2026
UmsóknarfresturEnginn
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
Staðsetning
Garðatorg 7, 210 Garðabær
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.JákvæðniPathCreated with Sketch.SamviskusemiPathCreated with Sketch.SkipulagPathCreated with Sketch.Þjónustulund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar