Flataskóli
Flataskóli
Flataskóli

Flataskóli leitar að umsjónarkennurum fyrir skólaárið 2026-2027

Flataskóla vantar metnaðarfulla umsjónarkennara á yngsta- og miðstig.

Viltu starfa í skapandi og faglegu skólastarfi þar sem velferð nemenda og gott samstarf eru í forgrunni?

Við leitum að kennurum í fullt starf frá 1. ágúst 2026, um er að ræða fast starf. Öllum áhugasömum kennurum er velkomið að sækja um, óháð reynslu á ákveðnu stigi – við leggjum áherslu á hæfni og metnað.

Flataskóli er grunnskóli með um 300 nemendur í 1.–7. bekk og um 50 starfsmenn. Í skólanum ríkir faglegur metnaður og lögð er áhersla á uppbyggileg samskipti og vellíðan nemenda. Skólinn er einnig réttindaskóli hjá UNICEF.

Í Flataskóla er lögð áhersla á jákvætt starfsumhverfi, öflugt samstarf starfsfólks og leiðsagnarnám sem lykilþátt í námsumhverfi nemenda.

Áherslur í starfi skólans

  • Fámenni í nemendahópum
  • Góður stuðningur við kennara og nemendur
  • Skapandi og faglegt skólastarf
  • Leiðsagnarnám sem hluti af daglegu skólastarfi


Kennarar hafa jafnframt tækifæri til að taka aukafrídaga með því að vinna af sér tvo daga á önn.
Sýn skólans er að efla seiglu, sjálfstæði, skapandi hugsun, sjálfstjórn og samkennd nemenda og starfsfólks.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Skipuleggja nám og kennslu nemenda
  • Kenna og hafa umsjón með nemendum
  • Stuðla að velferð nemenda og jákvæðum samskiptum við foreldra og annað fagfólk
  • Taka þátt í teymisvinnu og samstarfi innan skólans
  • Taka þátt í þróun skólastarfs með stjórnendum og samstarfsmönnum
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Kennaramenntun og leyfisbréf til kennslu* (leyfisbréf fylgi umsókn)
  • Að lágmarki 90 námseiningar á einu námssviði aðalnámskrár og menntunarfræði grunnskóla
  • Góð samskiptafærni og hæfni til samstarfs
  • Íslenskukunnátta á stigi C1 skv. evrópska tungumálarammanum
  • Reynsla af kennslu í grunnskóla eða starfi með börnum
  • Lipurð í samskiptum ásamt metnaði í starfi
  • Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum, stundvísi og samviskusemi
  • Áhugi og þekking á leiðsagnarnámi
  • Áhugi á skólaþróun
  • Góð tölvukunnátta

*Fáist ekki starfsmaður með leyfisbréf til kennslu kemur til greina að ráða háskólamenntaðan einstakling tímabundið til starfa sbr. lög nr. 95/2019.

Fríðindi í starfi
  • Heilsuræktarstyrkur fyrir starfsmenn sem ráðnir eru í starfshlutfall að upphæð 20.000 kr. eftir 6 mánuði í starfi
  • Bókasafnskort fyrir starfsmenn sem ráðnir eru í starfshlutfall eftir 3 mánuði í starfi
  • Menningarkort fyrir starfsmenn sem ráðnir eru í starfshlutfall eftir 3 mánuði í starfi
  • Sundlaugarkort fyrir starfsmenn sem ráðnir eru í starfshlutfall eftir 3 mánuði í starfi
Auglýsing birt16. mars 2026
Umsóknarfrestur7. apríl 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
Staðsetning
Vífilsstaðavegur 123, 210 Garðabær
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.JákvæðniPathCreated with Sketch.SamviskusemiPathCreated with Sketch.SkipulagPathCreated with Sketch.Þjónustulund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar