Lindaskóli
Lindaskóli
Lindaskóli

Kennarar óskast til starfa á yngsta stig og miðstig í Lindaskóla

Lindaskóli er skemmtilegur og lifandi vinnustaður þar sem lögð er áhersla á metnað í námi, vellíðan nemenda og gott samstarf starfsfólks. Við vinnum í teymum og leggjum áherslu á jákvætt starfsumhverfi, samvinnu og faglega þróun. Skólinn státar einnig af öflugri skemmtinefnd sem stuðlar að góðum starfsanda.

Lindaskóli er heildstæður grunnskóli í Kópavogi. Í skólanum um 450 nemendur í 1. -10. bekk og 90 starfsmenn. Þar ríkir góður starfsandi og vinnuaðstæður eru góðar. Lindaskóli leggur rækt við listir og menningu í skólastarfinu. Hann leggur jafnframt áherslu á umhverfismennt og er Réttindaskóli UNICEF. Virk heilsuefling er eitt einkenna skólans og hefur til margra ára verið í forystusveit skóla sem hafa tekið þátt í Skólahreysti. Mikil og góð samvinna er milli skólans og heimila í nærumhverfinu. Mikil áhersla er lögð á upplýsingatækni og fjölbreytta kennsluhætti.

Gildi Lindaskóla eru Vinátta, Virðing, Viska.

Lindaskóli óskar eftir að ráða metnaðarfulla og jákvæða kennara til starfa á yngsta stigi og miðstigi frá næsta skólaári.

Við leitum að kennurum sem hafa brennandi áhuga á starfi með börnum, vilja taka þátt í öflugu skólastarfi og leggja sitt af mörkum til að efla bæði nám og líðan nemenda. Á yngsta stigi vinnum við að innleiðingu þróunarverkefnisins "Kveikjum neistann".

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Annast almenna kennslu á yngsta eða miðstigi í samráði við samkennara
  • Samstarf í teymiskennslu
  • Bekkjarumsjón og samskipti og samstarf við foreldra og forráðamenn
  • Skipulagning og framkvæmd náms í samræmi við aðalnámskrá grunnskóla.
  • Stuðla að jákvæðu og hvetjandi skólaumhverfi fyrir alla nemendur.
  • Þátttaka í þróunarstarfi og starfsmannafundum.
  • Stuðla að velferð nemenda í samstarfi við starfsfólk skólans
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Kennaramenntun og leyfisbréf til kennslu skilyrði
  • Reynsla af kennslu æskileg
  • Góð þekking á upplýsingatækni og notkun rafrænna miðla í kennslu og starfi
  • Áhugi á teymiskennslu og samstarfi
  • Frumkvæði og metnaður í starfi
  • Jákvæðni og áhugi á að starfa í skapandi og metnaðarfullu umhverfi
  • Lipurð í samskiptum, sveigjanleiki og samstarfshæfni
  • Stundvísi og samviskusemi
Auglýsing birt9. mars 2026
Umsóknarfrestur25. mars 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
Staðsetning
Núpalind 7, 201 Kópavogur
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar