

Flataskóli óskar eftir þroskaþjálfa eða atferlisfræðingi
Flataskóla vantar metnaðarfullan þroskaþjálfa/atferlisfræðing til starfa
Viltu starfa í skapandi og faglegu skólastarfi þar sem vellíðan nemenda og gott samstarf eru í forgrunni?
Við leitum að þroskaþjálfa/atferlisfræðingi í 75–100% starf. Viðkomandi getur hafið störf strax ef möguleiki er á því, en annars 1. ágúst 2026. Um er að ræða fast starf.
Flataskóli er grunnskóli með um 300 nemendur í 1.–7. bekk og um 50 starfsmenn. Í skólanum ríkir faglegur metnaður og lögð er áhersla á leiðsagnarnám, uppbyggileg samskipti og vellíðan nemenda. Skólinn er einnig réttindaskóli hjá UNICEF.
Í Flataskóla er lögð áhersla á jákvætt starfsumhverfi, öflugt samstarf starfsfólks og leiðsagnarnám sem lykilþátt í námsumhverfi nemenda.
Áherslur í starfi skólans
- Leiðsagnarnám og einstaklingsmiðað nám
- Fagleg nálgun og metnaður í starfi
- Gott samstarf í teymum og við foreldra
- Stuðningur við nemendur með sérþarfir
- Veita nemendum með sérþarfir persónulega leiðsögn, stuðning og aðlögun í námi
- Halda utan um gerð, eftirfylgni og mat einstaklingsnámskráa í nánu samstarfi við umsjónarkennara, sérkennara og deildarstjóra
- Vinna í þverfaglegu samstarfi með kennurum, foreldrum og fagaðilum
- Stuðla að jákvæðum náms- og félagslegum aðstæðum fyrir nemendur með fjölbreyttar þarfir
- Koma að skipulagningu og framkvæmd stoðþjónustu innan skólans
- Veita ráðgjöf og aðstoð gagnvart foreldrum og starfsfólki um stuðningsúrræði og aðlögun
- Taka þátt í þróun skólastarfs, skipulagningu og samstarfi innan stoðþjónustu og sérkennsluteyma
- Eiga aðsetur í teymisfundum um nemendur og taka þátt í mati og skipulagi stuðningsúrræða
- Leyfisbréf til að starfa sem þroskaþjálfi eða meistaranám í hagnýtri atferlisgreiningu
- Góð samkskipta- og skipulagsfærni
- Áhugi á samvinnu og teymisvinnu
- Faglegur metnaður og frumkvæði
- Íslenskukunnátta á stigi C1 skv. evrópska tungumálarammanum
- Áhugi á leiðsagnarnámi og skólaþróun
Hlunnindi:
- Heilsuræktarstyrkur fyrir starfsmenn sem ráðnir eru í starfshlutfall að upphæð 20.000 kr. eftir 6 mánuði í starfi
- Bókasafnskort fyrir starfsmenn sem ráðnir eru í starfshlutfall eftir 3 mánuði í starfi
- Menningarkort fyrir starfsmenn sem ráðnir eru í starfshlutfall eftir 3 mánuði í starfi
- Sundlaugarkort fyrir starfsmenn sem ráðnir eru í starfshlutfall eftir 3 mánuði í starfi
Íslenska










