Þorláksskóli
Þorláksskóli
Þorláksskóli

Þroskaþjálfar - Þorláksskóli

Þorláksskóli er nýr sérskóli fyrir einhverf börn sem tekur til starfa haustið 2026 í Garðabæ. Við leitum að þroskaþjálfum sem vilja taka þátt í að byggja upp faglegt, öruggt og styðjandi skólaumhverfi fyrir einhverf börn þar sem hvert barn fær að vaxa á sínum forsendum.

Skólinn vinnur eftir hugmyndafræði TEACCH og DIR/Floortime og byggir starf sitt á taugaþroskavænni og áfallamiðaðri nálgun þar sem öryggi, tengsl og skynúrvinnsla mynda grunn að námi og þroska. Áhersla er lögð á einstaklingsmiðað nám, fyrirsjáanlegt og stuðningsríkt umhverfi og traust tengsl sem styðja þátttöku, vellíðan og sjálfstæði nemenda.

Við leitum að fólki sem:

  • hefur starfsleyfi sem þroskaþjálfi

  • hefur áhuga á að vinna með einhverfum börnum

  • hefur þekkingu á TEACCH/DIR Floortime
  • vinnur vel í teymi og sýnir frumkvæði

  • hefur jákvætt viðhorf og faglegan metnað

Við leggjum ríka áherslu á faglegt starfsumhverfi, stuðning við starfsfólk og vinnustaðamenningu þar sem öryggi, virðing og vellíðan eru í fyrirrúmi.

Skilyrði er að umsækjendur hafi hreint sakavottorð.

Ef þú hefur áhuga á að taka þátt í þessari vegferð með okkur hvetjum við þig til að senda umsókn.

Sendið ferilskrá og stutt kynningarbréf

Umsóknarfrestur er til og með 15. apríl 2026.

Nánari upplýsingar veitir Vigdís Gunnarsdóttir, [email protected]

Heimasíða: www.thorlaksskoli.is

Auglýsing birt16. mars 2026
Umsóknarfrestur15. apríl 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
Staðsetning
Garðabær
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.Hreint sakavottorð
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar