Árbæjarskóli
Árbæjarskóli

Sérkennari óskast til starfa í Árbæjarskóla

Viltu bætast í hóp öflugrar stoðþjónustu í Árbæjarskóla? Við leitum að sérkennara í stoðþjónustu skólans sem vinnur að því að mæta fjölbreyttum þörfum nemenda á uppbyggilegan og faglegan hátt. Innan stoðþjónustunnar starfa sérkennarar, þroskaþjálfar og stuðningsfulltrúar ýmist í bekkjaraðstæðum eða námsverum. Nú viljum við stækka þann hóp sem sinnir nemendum með sérþarfir og leitum eftir sérkennurum. Sérkennaramenntun æskileg en skoðum einnig reynslu umsækjenda af sérkennslu./kennslu.


Árbæjarskóli er heildstæður grunnskóli staðsettur í einstöku umhverfi Elliðaárdalsins. Nemendur eru rúmlega 750 talsins og er skólinn safnskóli á unglingastigi. Starfsmenn skólans eru um 108 og er starfsandi mjög góður. Boðið er upp á fjölbreytt og skapandi nám sem stuðlar að alhliða þroska nemenda með það að markmiði að nemendur verði sjálfstæðir og skapandi einstaklingar í síbreytilegu samfélagi. Skólinn leggur ríka áherslu á vandaða móttöku allra nemenda. Við skólann starfar áhugasamt foreldrafélag og samvinna við foreldra og grenndarsamfélag er gott. Við ætlum að stækka þann hóp sem sinnir nemendum með sérþarfir og leitum eftir sérkennurum.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Annast sérkennslu í samráði við deildarstjóra stoðþjónustu.
  • Vinnur að þróun skólastarfs með stjórnendum og samstarfsmönnum.
  • Stuðlar að velferð nemenda í samstarfi við annað fagfólk og foreldra.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Kennaramenntun, sérkennaramenntun og leyfisbréf kennara.
  • Reynsla af kennslu barna og unglinga er æskileg.
  • Hæfni í samskiptum.
  • Faglegur metnaður.
  • Reynsla og áhugi á að vinna með börnum.
  • Mjög góð íslenskukunnátta er skilyrði.
Auglýsing birt16. mars 2026
Umsóknarfrestur2. apríl 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
Staðsetning
Rofabær 34, 110 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar