

Kennari í náttúrugreinum á unglingastigi
Við í Kóraskóla leitum að skapandi og áhugasömum kennara til að slást í hópinn okkar og taka þátt í framsæknu skólastarfi út núverandi skólaár, með möguleika á áframhaldandi ráðningu næsta skólaár.
Starfið felst í kennslu náttúrufræði í öllum árgöngum skólans. Leitað er eftir kennara með sérhæfingu í kennslu náttúrufræðigreina.
Kóraskóli er við Vallakór í Kópavogi sem tók til starfa haustið 2023. Í skólanum eru um 280 nemendur í 8.- 10. árgangi og 35 starfsmenn. Í skólanum er lögð áhersla á skapandi og framsækið skólastarf og eru allir nemendur skólans með spjaldtölvur. Í námi og kennslu er rík áhersla lögð á einstaklingsmiðun náms, fjölbreytta kennsluhætti, leiðsagnarnám, verkefnamiðað nám, samþættingu námsgreina og teymiskennslu.
- Annast kennslu nemenda á unglingastigi í nánu samstarfið við önnur teymi skólans
- Heldur utan um skipulag kennslu í náttúrugreinum í öllum árgöngum
- Vinnur að þróun skólastarfs í samstarfi við stjórnendur og samstarfsfólk
- Vinnur samkvæmt stefnu skólans
- Leyfisbréf sem kennari (leyfisbréf fylgi umsókn)
- Háskólamenntun sem nýtist í starfi, svo sem á sviði kennslu eða náttúruvísinda
- Góð þekking á náttúruvísindum, áhugi og metnaður fyrir miðlun
- Góð íslenskukunnátta
- Þekking og reynsla af teymiskennslu æskileg
- Þolinmæði og góð hæfni í mannlegum samskiptum
- Framsækni í kennsluháttum
- Sjálfstæði, drifkraftur og brennandi áhugi fyrir skólaþróun
- Viðkomandi þarf að geta hafið störf sem fyrst
Starfsfólk Kópavogsbæjar fær frían aðgang að sundlaugum bæjarins
Íslenska










