Fellaskóli
Fellaskóli
Fellaskóli

Kennari í skólaíþróttum og sundi

Í Fellaskóla vantar okkur kennara í íþróttum og sundi í u.þ.b. 50% starf. Íþróttakennarar skólans eru í öflugu samstarfsteymi sem nýr kennari yrði hluti af. Í Fellaskóla er íþróttahús og Breiðholtslaug er í næsta nágrenni skólans. Hver árgangur er 2 kennslustundir í sundi og íþróttum á sama tíma og svo bætist við þriðja kennslustundin í íþróttasal. Kennt er í teymum í íþróttum.

Í Fellaskóla er fjölbreyttur og hæfileikaríkur nemendahópur. Flestir nemendanna tala fleiri en eitt tungumál og tengjast fjölmörgum löndum og menningarsvæðum. Með nemendum starfar öflugur hópur starfsfólks.

Skólastarfið einkennist af jákvæðum skólabrag ásamt samvinnu kennara sem miðar að því að koma til móts við ólíkar þarfir nemenda, styrkja samskipti innan nemendahópsins og skapa metnaðarfullt námsumhverfi án aðgreiningar þar sem nemendur geta látið drauma sína rætast.

Við höfum undanfarið unnið að ýmsum verkefnum til að bæta kennslu og aðra þjónustu við nemendur. Megináhersla er á málþroska og læsi, leiðsagnarnám og teymisvinnu kennara, ásamt tónlist og skapandi skólastarfi. Í skólanum starfa þrír deildarstjórar verkefna sem styðja við þessa þætti. Fellaskóli er skóli án aðgreiningar og meginstefnan er að sérkennsla og ÍSAT kennsla fari fram í bekkjarumhverfi. Mikil áhersla er á læsi í yngstu árgöngunum og við vinnum náið með leikskólum hverfisins til að efla málþroska nemenda.

Í Fellaskóla starfar talmeinafræðingur.

Við bjóðum upp á skemmtilegt starfsumhverfi, flottan starfsmannahóp og rík tækifæri til að þróast í starfi. Starfið hentar menntuðum íþróttakennara eða nema á síðasta ári (50%).

Fellaskóli er símalaus skóli, sem þýðir að nemendur nota ekki síma á skólatíma.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Annast kennslu nemenda í sundi og íþróttum.
  • Vinna í teymi íþróttakennara.
  • Vinna að þróun skólastarfs með stjórnendum og samstarfsfólki.
  • Stuðla að farsæld nemenda í samstarfi við foreldra og annað fagfólk.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Leyfi til að nota starfsheitið grunnskólakennari / í Med námi.
  • Áhugi á að starfa með börnum.
  • Hæfni í mannlegum samskiptum.
  • Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð.
  • Faglegur metnaður.
  • Áhugi á að starfa í skapandi og metnaðarfullu umhverfi.
  • Reynsla af teymisvinnu er kostur.
  • Mjög góð íslenskukunnátta.
Auglýsing birt16. mars 2026
Umsóknarfrestur29. mars 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
Staðsetning
Norðurfell 17-19 17R, 111 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar